samvinnufélög o.fl.
Virðulegur forseti. Mig langar að byrja á að ítreka það sem ég kom inn á í fyrstu ræðu minni í gær, og síðan aftur í umræðu um fundarstjórn forseta áður en þessi umræða hófst, að vissulega færi betur á því að þetta mál væri til frekari vinnslu í hv. atvinnuveganefnd í stað þess að horft væri til þess að það færi þangað milli 2. og 3. umr. eins og nú stefnir í. Málið er svo vanreifað og það er svo mikið af upplýsingum og gögnum sem við þingmenn, sem ekki eigum sæti í hv. atvinnuveganefnd, höfum beinlínis ekki aðgang að. Það liggur núna fyrir að gestur kom fyrir nefndina á meðan 2. umr. hefur verið í gangi. Það koma engin gögn til okkar almennu þingmanna vegna þeirrar heimsóknar og nú er okkur sagt að sjónarmið prófessors Stefáns Más Stefánssonar varðandi málið verði tekin til skoðunar í nefndinni milli 2. og 3. umr. En það sem verður að hafa í huga í því samhengi er að ræðutími okkar þingmanna er mjög takmarkaður í 3. umr. Það má því eiginlega segja að öll umræða á dýptina þurfi að eiga sér stað við 2. umr. Þess vegna vil ég enn einu sinni gagnrýna það að við séum hér í þingsal að ræða þetta mál, jafn vanreifað og það er og illa undirbúið. Við getum ekki tekið umræðuna með þeim upplýsingum og þeim formerkjum sem hún kallar á og á skilið. En það er nú eins og það er. Afstaða bæði forseta og framsögumanns og formanns nefndarinnar liggur nú fyrir og verður áhugavert að sjá hvernig nefndinni tekst að vinda ofan af mestu ambögunum í þessu máli öllu.
Í nefndaráliti minni hluta nefndarinnar, sem í eru hv. þingmenn Miðflokksins, Ólafur Ísleifsson og Sigurður Páll Jónsson, er það sem við þingmenn sem ekki erum í atvinnuveganefnd komumst næst í að ná tengingu við gagnrýnisatriði sem snúa að stjórnarskrá og eignarréttarákvæðum hennar. Það er auðvitað fyrir neðan allar hellur að í rauninni sé málinu ætlað að koma til 3. umr. úr atvinnuveganefnd með þeim takmarkaða ræðutíma sem þingmönnum stendur til boða þá og að þetta kjarnagagn sem Stefán Már Stefánsson leggur inn til nefndarinnar, en hann kom fyrir nefndina og fór yfir það þann 8. desember samkvæmt þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir, sé ekki reifað í nefndaráliti meiri hlutans og sjónarmið sem því tengjast.
Mig langar að því slepptu að fara stuttlega í nokkur atriði frumvarpsins sjálfs. Eins og ég kom inn á í gær er það um breytingu á nokkrum lögum; lögum um samvinnufélög, einkahlutafélög, hlutafélög og sameignarfélög. Í rökstuðningi með málinu er sérstaklega vísað til fyrirkomulags þessara mála í Noregi. En það sem blasir við núna og kom raunar fram í umræðunni strax 7. desember er að þessi rökstuðningur heldur ekki vatni. Staða þessara mála og meðhöndlun er með allt öðrum hætti í Noregi en það sem er lagt til hér. Þar er talað um skráð fyrirtæki á markaði. Þeir sem þekkja til vita að þegar fyrirtæki undirgangast skráningu eru ýmsar kvaðir sem því fylgja varðandi upplýsingar, endurskoðun, fjárhagslegar upplýsingar, hvernig staðið er að tilkynningum um breytingar og annað slíkt, fjölþætt atriði. Þetta er vissulega eitt af þeim, þessi kynjakvóti er viðhafður. Fyrirtæki, a.m.k. þau sem eru skráð á markað eftir að þær reglur voru settar, undirgangast það vitandi vits. En ef einhverjum í Noregi datt til hugar að innleiða reglu sem þessa á allt atvinnulífið gagnvart fyrirtækjum sem eru með fleiri en 50 starfsmenn, þá blasir við að sú hugmynd var kæfð, felld. Hún náði ekki fram að ganga. Auðvitað nær svona hugmynd ekki fram að ganga þar sem einhver vitræn umræða á sér stað af því að það er ekkert vit í svona ofboðslegri forsjárhyggju þar sem við þingmenn í þessu tilviki viljum hlutast til um það hvernig fólk fer með eignir sínar í þeim mæli sem liggur fyrir í þessu máli. Þetta er alveg ofsaleg forsjárhyggja. Þetta er einhver yfirstéttarjafnréttisnálgun.
Fólk sem hefur raunverulegar áhyggjur af jafnréttismálum er ekki sérstaklega að hugsa um fjölda kvenna eða karla í stjórnum sem hittast af og til. Það eru miklu brýnni og meira aðkallandi mál fyrir miklu stærri hópa og hópa sem eru kannski við neðri mörk eða neðan miðju tekjuskalans. Þar er tækifæri til að bæta verulega í hvað jafnréttismál varðar, t.d. með því að gera stórum kvennastéttum kleift að semja við annan en ríkið hvað laun sín varðar og kjör. Auðvitað eigum við að líta á það sem jafnréttismál að auka frelsi í heilbrigðismálum og menntamálum og þar fram eftir götunum þannig að kennarar og þeir sem hafa menntað sig á hinum ýmsu sviðum heilbrigðisgeirans geti samið við aðra en ríkisbáknið. Það myndi styðja við launakjör þeirra hópa. Við eigum að reyna að feta okkur í þá átt að tala um hlutina eins og þeir eru og setja orkuna og athyglina á þau mál og þau atriði sem virka og skila einhverjum árangri. Þetta furðulega kvótamál hvað stjórnarmenn varðar í einkafyrirtækjum er bara sýndarmennska eins og svo margt sem sagt er og gert er í þessum málum, rétt eins og í öðrum málaflokki sem er nú orðið oft líkt við trúarbrögð, sem eru umhverfis- og loftslagsmál.
Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að þróun hvað fjölda kvenkyns stjórnarmanna varðar hafi verið í þá veru að hlutfallið hafi verið að jafnast jafnt og þétt undanfarin ár. Það eru einhver sérstök ónot sem fylgja því að við stjórnmálamenn þurfum endilega að stíga inn á síðustu metrunum þegar hlutir eru svona dálítið að jafna sig og leysast af sjálfu sér, ef vandamál er til staðar. En nú skal miðað við árið 2019, en hér segir, með leyfi forseta:
„Árið 2018 var hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með yfir 50 launþega 33,5% og hækkaði hlutfall þeirra aðeins um 1% árið 2019 í 34,7% stjórnarmanna …“
Þetta er engu að síður að nálgast ansi hratt það 40% mark sem hér um ræðir og er grundvöllur þess að hér koma þingmenn í röðum og vilja innleiða sérstök refsiákvæði, sektarákvæði, til að ná því markmiði. Er það ekki fulllangt gengið og sérstaklega núna á þessum síðustu og verstu Covid-tímum þar sem býsna mörg fyrirtæki eiga fullt í fangi með að verja rekstrarlegar forsendur sínar? Er þetta það sem við viljum? Eru þetta skilaboðin sem Alþingi vill senda til rekstraraðila millistórra fyrirtækja hér heima? Ég held ekki.