samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Meðan við ræðum þetta mál þá koma upp nýir fletir á því, þar á meðal sá sem kom í ljós í morgun þegar hæstv. forseti þingsins sagði í andsvari að það sem hann hefði sagt á forsetastóli Alþingis 7. desember sl. hefði hann eiginlega ekki meint eins og hann sagði það eða þá að ekki hefði verið að marka það sem hann sagði af forsetastóli 7. desember sl. Öðruvísi er ekki hægt að taka því sem hann sagði í andsvari í þessu máli í morgun. Það er auðvitað bagalegt í sjálfu sér en aðalatriðið er hins vegar það að málið sem slíkt hefur ekki fengið vandaða meðferð, alls ekki. Bent hefur verið á að þess vegna sé nauðsynlegt að ræða það í 2. umr. vegna þess að í 3. umr. um frumvörp gefist lítill tími til umræðna. Því er um að gera að nota 2. umr. til að reyna að þoka málum til betri vegar og reyna að grípa í taumana ef stefnir í óefni.
Það er einmitt það sem hefur verið reynt í þessari umræðu, þ.e. að koma í veg fyrir að óvönduð vinnubrögð haldi áfram í málinu þar sem ekkert er gert með síðustu gestakomu í málinu o.s.frv. Það blasir við að hv. atvinnuveganefnd hefði þurft lengri tíma áður en málið kom aftur á dagskrá. Frá 7. desember hefði atvinnuveganefnd þurft meiri tíma til að fá fleiri gesti og fara betur yfir málið. Það hefur líka komið í ljós að frá því að hv. flutningsmaður málsins hóf baráttu fyrir því að tekin yrði upp sérstök refsistefna í málefnum fyrirtækja sem ekki hefði tekist að uppfylla þessi skilyrði, eins og frumvarpið gengur fram með, hefur hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja sem hér eru til umræðu farið úr 28% upp í 35%, á tveimur árum. Við höfum ekki upplýsingar frá 2020. Vissulega hafa þessi mál því þokast án þess að beitt sé févítum og það kemur heim og saman við það sem við höfum haldið fram í umræðunni, að málin hafi þokast til réttrar áttar og muni á endanum og innan skamms komast í það horf sem við viljum sjá.
En það er hins vegar líka spurning um fordæmið sem sett er í frumvarpinu. Ef við viljum fá fram einhverjar umbætur, hvort sem er í jafnréttismálum eða öðru, ætlum við þá að taka upp refsistefnu í því? Það eru fjölmörg önnur álitamál sem til greina koma sem gerast bæði í fyrirtækjarekstri og annars staðar, ætlum við þá að taka upp svona refsistefnu? Mér hefur virst og heyrst að vilji sé til þess, alla vega einhvers staðar á þessu þingi, á Alþingi, að draga úr refsigleði sem kölluð er, talað er um að afglæpavæða hitt og þetta. Á sama tíma eru menn að auka refsigleði og setja fram refsistefnu um mál sem varðar fyrirtækjarekstur í landinu.
Ég held að það sé í sjálfu sér ekki endilega til farsældar að fara fram með þeim hætti. Það eru ótal önnur tilvik sem varða daglegt líf í landinu sem hafa færst til betri áttar þrátt fyrir að þeim áætlunum og þeim vilja hafi ekki verið framfylgt með refsivendi. Umhverfi fyrirtækja á Íslandi er býsna flókið. Flækjustigið er ærið. Það er flækjustig við að stofna fyrirtæki, það er flækjustig við að reka fyrirtæki. Menn þurfa að afla sér ýmiss konar leyfa sem kosta peninga. Það eru lögð á fjölmörg gjöld. Ég man t.d. ekki, svo að dæmi sé tekið, hversu mörg leyfi þarf til að opna eina hárgreiðslustofu eða lítinn veitingastað, en þau eru gríðarlega mörg og það er gríðarlega flókið og mikið flækjustig þar í. Ef við ætlum svo að bæta nýrri refsistefnu við það flækjustig sem þegar er fyrir hendi við stofnun og stjórn fyrirtækja á Íslandi þá missum við einfaldlega samkeppnisstöðu að mínu áliti.
Í gær hafði ég undir höndum sérblað Fréttablaðsins, sem var gefið út af Félagi kvenna í atvinnurekstri, og þar er rakið í nokkuð löngu máli hvaða árangri konur eru að ná hvarvetna í atvinnulífinu án þess að til komi hótanir eða févíti eða refsingar, eins og ég rakti hér í gær. Ég hef einfaldlega mikla trú á konum, herra forseti, og við höfum það Miðflokksfólkið. Ég hef einfaldlega þá trú að þegar konur gefa kost á sér til ábyrgðarstarfa, það hefur ekki alltaf verið svo vegna ýmiss konar kringumstæðna þeirra, þá að sjálfsögðu muni krafta þeirra verða leitað og þeir nýttir. Ég hef einfaldlega það mikla trú á konum að þær muni sjálfar sýna fram á það hvernig fyrirtæki dafna og blómstra þegar þær koma að verkum, hvort sem er í toppstöðum eða í forystu fyrir fyrirtækjum eða í stjórnum fyrirtækjanna. Ég held kannski að þess vegna ekki síst hafi þessi árangur náðst nú á síðustu tveimur árum að hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja, af þessari stærð, hefur aukist þetta mikið eins og ég rakti áðan. Ég sé enga ástæðu til annars, herra forseti, en að sú þróun haldi áfram og það bil sem við erum að tala um að þurfi að brúa, og þarf að brúa, verði brúað nú á næstu misserum.
Ég er hins vegar enn jafn hugsi yfir því, herra forseti, hvaða stefnu þetta mál tók og vinna þess hér í þinginu. Ég er almennt þeirrar skoðunar að við eigum að vanda okkur verulega við lagasetningar og við eigum að vanda okkur við meðferð þingmála. Það hefur komið fyrir nokkrum sinnum að við Miðflokksfólkið höfum tekið að okkur að efna til umræðu um mál sem hafa verið vanreifuð og lítt hugsuð. Það hefur á stundum kallað á töluverða umræðu en sú umræða hefur alltaf skilað árangri, herra forseti, alla vega þeim árangri að fólki utan þessara veggja verði betur ljóst um hvað þau mál sem við höfum beitt okkur í snúast. Ég get nefnt sem dæmi samgöngusáttmálann milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins sem stórbatnaði vegna þess að við tókum í taumana. (Forseti hringir.) Ég held að það verði eins um þetta mál, herra forseti, að ef betur verður farið í það og það unnið betur þá muni það verða betra.