samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Ég hef afar margt að segja um þetta mál umfram það sem ég hef þegar sagt, það er varla að maður viti hvar eigi að byrja. Ég ætla samt að byrja á öðru sem mér finnst athyglisvert sem komið hefur fram í þessu máli. Það eru orð hæstv. forseta fyrr í dag þar sem hann var að útskýra gang málsins hér á þinginu, hvernig það kom til að það birtist allt í einu aftur hér í þingsal án þess að það væri formlega afgreitt úr hv. atvinnuveganefnd. Ef þetta mál er skoðað þá var það til umræðu 7. desember sl. í 2. umr. og eftir þó nokkrar umræður og ábendingar sem komu fram um að ýmislegt ætti eftir að gera í málinu viðhafði hæstv. forseti þessi orð í lok þeirrar umræðu:
„Umræðu um 7. dagskrármálið er nú frestað og hefur framsögumaður málsins upplýst mig um að heppilegast sé að það sé kallað aftur til nefndarinnar á þessu stigi og verður það þá gert. Umræðunni er frestað og málið gengur aftur til hv. atvinnuveganefndar.“
Hæstv. forseti. Sá sem þetta talaði 7. desember hefur komið hingað aftur upp í dag í ræðu um fundarstjórn forseta í þeim tilgangi að útskýra það hvers vegna þetta mál birtist allt í einu hér á dagskránni, bókstaflega eins og þruma úr heiðskírum himni. Hann segist í stuttu máli hafa með aðstoð skrifstofunnar kannað stöðu þessa máls. Svo segir forseti:
„Stutta sagan er sú að þótt ég hafi tekið til orða með tilteknum hætti, og það hefði mátt skilja mig þannig, þegar ég talaði um að málið gengi til nefndar, þá var það ekki svo. Það sést bæði af umfjöllun nefndarinnar sjálfrar og hvernig hún skildi við málið og upplýsingum um það, þar sem rætt var í lok fundar um að málið kæmi aftur til nefndarinnar milli 2. og 3. umr. og það hefði verið undirbúið og starfsmenn nefndarinnar undirbúið skoðun á málinu milli 2. og 3. umr.“
En svo segir hann, og er það það sem ég er kannski aðallega að benda á:
„En það sem mestu skiptir er að stöðu málsins var ekki breytt í skráningarkerfi Alþingis.“
Hvað er hér í gangi, herra forseti? Forseti stjórnar fundi 7. desember, tilkynnir meðferð málsins, að það fari til nefndarinnar. Það er ekki afgreitt úr nefndinni, það er reyndar fundað um það einu sinni, en ekki afgreitt úr nefndinni formlega, og svo birtist málið aftur í þingsal í gær. Það er eðlilega spurt hverju það sæti. Þá kemur þessi skýring að þrátt fyrir orð forseta 7. desember hafi skráningu málsins verið þannig háttað að litið sé svo á að óhætt sé að taka það fyrir án þess að nefndin afgreiði það frá sér. Þetta er einkennilegt og kemur mér til að spyrja: Hver er það sem stjórnar annar en forseti Alþingis? Hver stjórnar Alþingi annar en forseti Alþingis, dagskrá Alþingis, og vísar málum inn og út úr umræðum? Hver er það annar en forseti Alþingis? Af orðum hæstv. forseta má skilja sem að skráning málsins, sem sagt að einhver starfsmaður hafi tekið ákvörðun um að skrá málið ekki eða skrá það á einhvern hátt, skipti öllu máli. Alveg sama hvað forseti segir.
Þetta er eins afkáraleg skýring og framast er hægt að ímynda sér vegna þess að ef skráning misferst á einhvern hátt þá gildir hún auðvitað ekki. Þá gildir það sem forseti ákveður í forsetastóli. Að sjálfsögðu, herra forseti. Þetta er hlægilegasta og aumkunarverðasta skýring sem ég hef nokkurn tímann heyrt.