151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

sóttvarnalög.

329. mál
[15:35]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Nei, ég er ekki á því að setja algert bann heldur er ég að tala um að vonandi getum við með lögum eins og þessum sett það miklar hindranir á flutninga milli landa að það verði þannig að viðkomandi hugsi sig tvisvar um áður en hann fer af stað. Hann geri það þá ekki nema í einhverjum mjög nauðsynlegum tilgangi vegna þess að því auðveldara sem ferðalagið er á þessum tíma því fleiri fara, við vitum það. Við vitum að um leið og fólk átti að borga kostnað af sýnatöku og öðru þá datt niður fjöldinn. Við getum stýrt þessu og við eigum að stýra þessu. Við eigum að reyna að stýra þessu eins mikið og við getum vegna þess að ávinningurinn fyrir okkur innan lands er svo mikill. Við erum lítið eyland, við getum og eigum að sjá til þess, fyrst við getum það á annað borð, að vera nokkurn veginn veirufrí. Og segja að það sé ekki hægt að hafa það veirufrítt — við gleymum því að síðan Covid kom þá kemur ekki önnur flensa og alls konar veikindi hafa gufað upp, liggur við, í þessu árferði. Það virðist vera hægt að útiloka a.m.k. flensuna, okkur hefur tekist algerlega að útiloka flensuna á þessu tímabili þannig að möguleikarnir eru til staðar, við getum haft svo til veirufrítt land, þ.e. þegar við erum búin að losa okkur við þessa Covid-veiru. Ávinningurinn af því að ná því ætti að vera það mikill fyrir okkur að ég er alveg sannfærður um að það myndi margborga sig fyrir okkur miðað við stöðuna í dag, það segir sig sjálft, miðað við að við erum með allt í stoppi og þurfum að vera með fullt af fólki á launum frá ríkinu sem gæti verið að vinna á fullu ef veiran væri ekki til staðar hérna.