sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir andsvarið og ég fagna því að fá að skýra afstöðu mína hvað varðar skyldubólusetningu og bólusetningu yfir höfuð. Við höfum bólusett hér á Íslandi í áratugi gegn ýmsum mjög hættulegum sjúkdómum; mislingum, heilahimnubólgu. Framsögumaður nefndarinnar er kannski betur að sér, verandi læknir, um nákvæmlega hvaða sjúkdómum við bólusetjum við hér á Íslandi. Áður hefur komið upp sú hugmynd hvort ekki mætti skylda foreldra til að bólusetja börnin sín gegn þessari óværu en þá hefur sóttvarnalæknir sagt að því miður mæti það ekki markmiðinu. Þar sem reynt hefur verið að skylda í bólusetningu hefur það orkað öfugt, það hefur unnið gegn markmiðinu. Þetta finnst mér náttúrlega alveg gríðarlega sterk rök fyrir löggjafann í hvaða tilfelli sem er. Ef markmiðið er til að mynda að fá sem flesta til að bólusetja börnin sín eða bólusetja fyrir Covid myndi skyldubólusetning hafa öfug áhrif eða draga úr líkunum á því að markmiðin náist. Það út af fyrir sig er bara fullnægjandi sjónarmið.
Hitt eru þessi stjórnarskrárvörðu réttindi okkar sem einstaklinga eins og ég kom inn á. Þau tilheyra okkur og það er ofsalega miklum vandkvæðum bundið að fara nálægt þeim. Jú, sú staða getur komið upp að það þurfi. Ég fæ kannski að svara þessu atriði betur þegar ég kem hingað upp síðar. Ég ætla að gera betur grein fyrir því þá. Tíminn er búinn.