151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

sóttvarnalög.

329. mál
[17:26]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir ræðuna. Ég sat sem varamaður einn fund um daginn í nefndinni þegar verið var að ræða þetta frumvarp. Þetta er heljarmikið mál og viðkvæmt í leiðinni. Ýmislegt hefur komið fram í ræðum í dag. Þingmenn hafa áhyggjur af skörun, hvar stjórnmál eigi að koma inn í og síðan sóttvarnalæknir eða sóttvarnayfirvöld og annað slíkt.

En það er eitt sem ég vil nefna sem kemur þessu frumvarpi kannski ekki beint við en við stjórnmálamenn höfum samt sem áður haft áhyggjur af og ugglaust margir landsmenn, þ.e. hve mikil slagsíða er að koma á efnahagshliðina. Við spyrjum okkur að því daglega hvenær við komumst fyrir vind þannig að hjól atvinnulífsins fari að snúast aftur. Sagt er að ástandið eins og það er í dag kosti milljarð á dag. Mig langar til að spyrja hv. þingmann, af því að ég reikna með að þingmaðurinn hafi áhyggjur af þessu, hvort hún geti horft inn í þá spádómskúlu og sagt til um hvenær við förum að sjá hjól atvinnulífsins snúast á ný.