sóttvarnalög.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og spurninguna, sem er reyndar ansi víð spurning og risamál og tengist óbeint því máli sem við ræðum hér, þ.e. sóttvarnaaðgerðum. Ef ég leyfi mér að horfa álíka vítt á þetta og hv. þingmaður langar mig að segja að ég held að stóra málið sé — ég ætla að fara út í sóttvarnalögin af því að við erum jú að ræða þau hér — að mér finnst stundum gleymast hjá þeim sem harðast hafa gagnrýnt sóttvarnaaðgerðir út frá þeim hömlum sem þær setja á atvinnurekstur, að óvinurinn er ekki sóttvarnaaðgerðirnar heldur kórónuveiran. Ég er sannfærð um að atvinnureksturinn sæi ekki ljósið þó svo að þessum sóttvarnaráðstöfunum, með tilheyrandi hömlum á atvinnulíf hér á landi, væri aflétt. Við sjáum það bara þegar við lítum á ástandið í löndunum í kringum okkur og þegar við metum hversu stór verðmæti eru fólgin í ferðaþjónustunni og hversu mikil áhrif hún hefur.
Satt að segja hef ég enga tilfinningu fyrir því hvenær við sjáum til lands. Við getum farið þá leið, og þær raddir heyrast, að við getum haldið okkar litlu, lokuðu búblu og opnað einhverja litla staði, svo langt sem það nær. Einhverjir næðu þá vopnum sínum, en þá væri bara verið að tjalda til einnar nætur. Við höfum jú allt að vinna með því að heimurinn, stóra samfélagið, nái vopnum sínum í þessu máli og að við náum ferðaþjónustunni aftur upp og öðrum eðlilegum utanríkisviðskiptum. Ég held að það sem við getum best gert sé að vera sem tilbúnust hér þannig að okkar litla hagkerfi, (Forseti hringir.) samfélag okkar, verði í lagi þegar að því kemur. Við þurfum kannski fyrst og fremst að beina sjónum okkar að því núna.