sóttvarnalög.
Herra forseti. Ég er mjög bjartsýn manneskja og ég var hér að þylja upp svartsýnisspár annarra, bara svo því sé til haga haldið. Kristalskúlan mín er miklu ljósari. En varðandi þessa spurningu um þingið, ég er ekki alveg viss um að ég hafi náð inntakinu hjá hv. þingmanni, þá eru stjórnvaldsaðgerðir sem fela í sér íþyngjandi inngrip og fordæmalítil klárlega þess eðlis að þingið þarf að eiga aðkomu að því, að mínu mati. Stjórnvaldsaðgerðir af öðrum toga, ég veit ekki hvort núgildandi lög — ég á svolítið erfitt með að svara þessu. Ég hefði þurft nánari dæmi frá hv. þingmanni til að geta farið ofan í það. En mér finnst svo gott við þessa vinnu að hún er búin að leggja svolítið brautina, þetta hefur verið skólabókardæmi um það að þingið bæði á og þarf og getur komið að. (Forseti hringir.) Raddir um annað eru svolítið, að mínu viti, kveðnar í kútinn með þessu dæmi.