sóttvarnalög.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir áhugaverða ræðu. Ég hjó eftir því að þingmaðurinn talaði mjög varlega, hún gerir það nú reyndar yfirleitt, sem aðrir mættu kannski læra. En það sem ég velti fyrir mér er hins vegar þessi árátta — ég ætla ekki endilega að nota það orð en er með ákveðið enskt orð í huga sem ég er að reyna að þýða „tendency“ eða (Gripið fram í: Tilhneiging.) — tilhneiging, þarna kom það, árátta er svo ljótt. Tilhneiging til þess að beita ofríki eða valdi er mjög rík þegar eitthvað bjátar á. Hv. þingmaður kom m.a. inn á stjórnarskrána og eignarréttinn og þá fer maður að hugsa: Bíddu, það eru hundruð manna sem hafa misst atvinnuna í þessum faraldri öllum saman, aðrir hafa misst eignir sínar, fyrirtæki hafa lokað, sum eru jafnvel við það að loka núna o.s.frv. Erum við sammála um að ekki eigi að koma fullar bætur fyrir þegar ástæða þess að fyrirtækjum er lokað, fólki er sagt upp, eru ákvarðanir ríkisvaldsins þó svo að þær séu teknar með góðum hug?
Ég hef aðeins áhyggjur af þessu, að þetta sé kannski ekki alveg nógu skýrt, hefði kannski þurft að skýra það betur og kannski er það markmiðið að gera það með öðrum lögum eða í heildarendurskoðuninni. Ég velti líka fyrir mér hvort ekki hefði verið nær að vera með sérfrumvarp með þessu máli öllu saman til að tryggja að ef við værum að setja íþyngjandi reglur værum við á sama tíma að segja að einhverjar bætur komi á móti, fullar bætur þess vegna, þar sem það veitir um leið ríkinu aðhald.