sóttvarnalög.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum kærlega fyrir andsvarið og þetta er mjög mikilvægur punktur. Þetta er algjört lykilatriði og akkúrat vegna þessara inngripa og þess tjóns sem af því hlýst fyrir einstaklinga og fyrirtæki, hvort sem það er eignatjón eða skerðing á atvinnu með tilheyrandi eignatjóni í framhaldinu, skiptir máli að aðgerðir sem gripið er til séu rökstuddar og alltaf sé haft í huga að verið sé að grípa til aðgerða til að vernda meiri hagsmuni, það sé alltaf þannig, menn viti það, og hins vegar að bætur komi fyrir. Þetta er nákvæmlega ein af ástæðum þess að rök stóðu til þess að ekki væri farið svona hratt í þessar umfangsmiklu breytingar núna heldur þyrfti að þroska umræðuna vegna þess að við erum svolítið á nýjum slóðum. Nú vantar mig orðið. Við erum sem sagt að feta ótroðnar brautir í þessu. Það er bara þannig, við erum þar.
Það er alveg hægt að snúa þessu á einhvern hátt við og segja: Við þurfum líka að gæta þess að bótaskylda stjórnvalda sé ekki svo mikil og rík að stjórnvöld veigri sér við að grípa til aðgerða sem sannarlega munu vernda líf og heilsu fólks. Þessi umræða hefur ekki verið tekin nægilega og þegar upp er staðið og rykið sest og við förum að líta til baka og ef niðurstaðan er sú að gripið hafi verið til verulega íþyngjandi aðgerða, sem hefði ekki þurft í ljósi stöðunnar, þá er það eitthvað sem ekki verður endilega þægilegt að skoða. Ég á erfitt með að svara þessu á annan hátt. Ég er í grundvallaratriðum sammála og ég tel að þetta hljóti að þurfa að liggja til grundvallar í heildarendurskoðun á þessum lögum, að við förum yfir það, og það sé algjörlega tryggt að við göngum ekki of mikið, helst ekkert, en við munum alltaf þurfa að gera það að einhverju leyti ef við ætlum að beita þessum sóttvarnalögum, á réttindin hvað þetta varðar. Þetta er risaverkefni.