sóttvarnalög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og ég vil koma aðeins að öðru. Það er í frumvarpinu sjálfu, 11. gr., en þar er fjallað um að lögreglustjóra sé heimilt að vísa útlendingi, sem ekki er búsettur hér á landi, úr landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum eftir komu ef hann neitar að verða við fyrirmælum um ráðstafanir sem ráðherra hefur heimilað samkvæmt 2.–5. mgr. eða í ljós kemur að hann hafi ekki fylgt þeim. Við höfum séð fréttir af því að nú hefur t.d. Noregur hreinlega verið að loka landinu nánast. Mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvort hann telji nægilegar heimildir til að loka landinu fyrir t.d. ákveðnum hópum fólks. Ég nefni sem dæmi að nú gerðist það, þegar það var mjög lítið (Forseti hringir.) af ferðamönnum sem komu til landsins, að svolítill hópur hælisleitenda kom til landsins. (Forseti hringir.) Telur hv. þingmaður fullnægjandi heimildir í þessum lögum til að loka fyrir ákveðnum hópum eða ákveðnum löndum o.s.frv.?