sóttvarnalög.
Hæstv. forseti. Ég get ekki látið hjá líða að koma aðeins inn á sóttvarnalög. Ég ætla að leyfa mér að fjalla aðeins um þetta Covid-dæmi í leiðinni. Ég held að alveg sé kominn tími til, svo ég segi það nú, að við rennum styrkari stoðum undir aðgerðir og annað sem við höfum þurft að grípa til. Ég er sammála þeim sem segja að þetta mál þurfi að sjálfsögðu að klára. Sem betur fer gefa menn sér tíma og ættu jafnvel, eins og hv. þm. Bergþór Ólason sagði áðan, að gefa sér ögn meiri tíma til að klára þetta mál.
Áður en ég fer í málið sjálft, sem ég ætla að reifa aðeins á eftir, langar mig að segja að við Íslendingar höfum verið svolítið heppin í þessu öllu saman. Við erum býsna heppin með að við erum fá og í nokkuð stóru landi þar sem auðvelt er að halda fjarlægð. Við erum yfirleitt löghlýðin, við förum oftast, alla vega flest okkar, eftir þeim reglum sem okkur er ætlað að fylgja og við virðum gjarnan yfirvaldið þegar það segir okkur fyrir verkum eða biður okkur að gera eitthvað. Það hefur því margt lagst með okkur í þessu. Ég held að þær sóttvarnaaðgerðir sem gripið var til hafi í það minnsta í mörgum tilfellum verið réttar. Við getum alveg deilt um einstakar aðgerðir og slíkt. Ekki dettur mér í hug að segjast hafa vit á áætlunum, líkönum og öllu því dóti, en samt sem áður eru að sjálfsögðu ákveðin vonbrigði í þessu öllu saman hvernig faraldurinn blossar upp aftur og aftur, hvernig einstök slys hafa orðið og afleiðingar þeirra.
Síðan er það efnahagslegi þátturinn eða þátturinn sem snýr að fyrirtækjunum í landinu og hlutverki stjórnvalda. Mér hefur ekki þótt skemmtilegt eða gott að upplifa alla þá óvissu og ég ætla bara að segja það; þessa óreiðu í upplýsingum sem verið hefur frá stjórnvöldum varðandi þennan faraldur, skort á því að geta sagt fólki og fyrirtækjum, eða stjórnendum þeirra, hvernig hlutirnir verða, að ef þeir líti svona út þá gerist þetta o.s.frv., þannig að menn geti gert áætlanir. Lengst af, þar til seint á síðasta ári, hefur verið brugðist við með stuttum fyrirvara og ekki gerðar miklar væntingar um framtíðarsýn fyrir framhaldið.
Ég ætla líka að gagnrýna það að heilbrigðisráðuneytið skyldi ekki sjálft hafa forgöngu um að deila með alþingismönnum þeim samningum sem gerðir voru eins og við höfðum óskað eftir. Í svari til þess er hér stendur við því hvort hafa mætti þessa samninga opinbera og fá þá birta, er nánast farið í einhverja útúrsnúninga. Við höfum ágæta kunnáttu í því hér í þinginu að fara með gögn sem trúnaður er yfir. En auðvitað á ekki að vera trúnaður yfir megininnihaldi svona samninga. Það getur vel verið að í þeim séu einhverjar upplýsingar sem snerta bóluefnaframleiðendur eða eitthvað slíkt sem er eðlilegt að lita svart eða birta ekki. En almennt á að mínu viti ekki að hvíla nein leynd yfir samningunum. Við sáum það hér fyrir nokkrum árum þegar alþingismenn þurftu að toga nánast með töngum þúsundir eða alla vega hundruð blaðsíðna til að reyna að komast ofan í hvað var raunverulega að gerast í þessu svokallaða Icesave-máli. Stjórnvöld eiga ekki að halda svona gögnum frá þingmönnum.
Síðan langar mig að segja líka að ég hef verið þeirrar skoðunar og komið því margsinnis á framfæri, að líkt og þegar hrunið skall á okkur 2008 hefðum við átt að grípa til risastórra aðgerða til að slá vörn um fyrirtæki og heimili í landinu, — skjaldborg er ekki gott orð, það hefur ekki á sér sérstaklega góða mynd — að taka þetta allt í fangið og sjá til þess að menn töpuðu ekki húseignum sínum eða heimilum meðan við værum að vinna okkur út úr þessu. Ég held enn að rétt hafi verið staðið að því. Ég ætla að geyma það, ég kem kannski aðeins að því aftur á eftir.
Ég ætla nú að hæla nefndarálitinu. Það er mjög læsilegt og vel gert. Það er auðvelt að feta sig í gegnum það og ég held að það sé frekar satt, ef hægt er að segja það um þetta. Þannig að ég ætla að hæla því. Drepið er á ýmislegt, komið er inn á smitrakningu, sóttvarnaráð og annað. Ég ætla að koma aðeins inn á ræðu hv. þm. Önnu Kolbrúnar Árnadóttur þar sem hún talaði einmitt um hlutverk sóttvarnaráðs. Mig langar að taka undir það með henni að við séum með skýran ramma um að þessir aðilar eigi að hafa þetta hlutverk komi staða sem þessi upp. Á blaðsíðu 5 í nefndarálitinu kemur fram að Læknafélag Íslands telji mikilvægt að viðhalda og styrkja stefnumótandi hlutverk sóttvarnaráðs. Ég fagna því að nefndin ákveði að framlengja líf ráðsins en að jafnframt verði hlutverk þess skilgreint betur við heildarendurskoðun á lögunum. Ég held að ég hafi séð þar talað um, með leyfi forseta, að móta stefnu í sóttvörnum. — Allt í góðu. Tökum bara umræðu um það. Alla vega fagna ég því að nefndin hafi m.a. hlustað á Læknafélag Íslands, og sjálfsagt fleiri, í því máli öllu saman.
Herra forseti. Menn hafa verið með smitrakningarappið í gangi í marga mánuði, sem er bara alveg sjálfsagt þegar við glímum við aðstæður sem þessar. Mér finnst það í það minnsta. Ég held að rétt sé að sú leið sem farin er, þó að hún sé að sjálfsögðu valkvæð, byggi á traustum grunni. Hugtakið er skilgreint hér í lögum, sem er mikilvægt.
Ég kynnti mér aðeins umsagnirnar og þar á meðal umsögn Sjúkraliðafélags Íslands sem minnst er á hér. Ég fagna því að nefndin taki undir ábendingar sem þar koma fram.
Síðan er ágætiskafli um hvort þetta sé í samræmi við stjórnarskrána. Þar er m.a. vitnað í laganefnd Lögmannafélags Íslands, heilbrigðisráðuneytið og fleira. Fagna ég því sem fram kemur í lokin á þessari umfjöllun í nefndarálitinu, á blaðsíðu 6, að allt tal um útgöngubann falli á brott. Það er mjög mikilvægt að við förum í heildstæða umræðu um hvaða heimildir ríkisvaldið eigi að hafa til að takmarka frelsi einstaklinganna. Það væri svolítið sérstakt, fyndist mér, að sjá ákvæði um útgöngubann. Ég hef reyndar áhyggjur af þeim hugsanagangi að setja það inn í lagafrumvarp sem þetta, sem og hef ég töluverðar áhyggjur af því að býsna frjálslega hafi verið farið með ákvarðanir sem geta snert eignarrétt landsmanna þegar kemur að fyrirtækjum, að menn ákveði og velji sjálfir þá leið sem þeir fara varðandi sjálfa sig og rekstur fyrirtækja sinna, svo að ég segi það nú bara.
Ég tek líka undir að það er ánægjulegt að sjá að Alþingi er ofið inn í þetta. Alþingi hefur að sjálfsögðu sýnt það í þessu máli, eins og fram hefur komið hér, bæði hjá stjórnarþingmönnum og stjórnarandstæðingum, að það hefur alveg haft burði til að fjalla um mál sem þetta og hefur svo sem sýnt það áður. Sem betur fer kom þetta mál hingað inn með þessum hætti. Það var full þörf á því að laga málið, eins og nefndin gerir svo sannarlega undir eflaust góðri stjórn frummælanda þessa nefndarálits.
Hér er svo rætt líka um heilbrigðisskoðanir. Þetta er vitanlega eðlilegt mál í rauninni. Þegar hlutirnir hafa breyst býsna hratt og mikið og það eru fleiri en læknar sem skoða okkur og undirbúa okkur, þá fyrir lækna eða að við sjáum jafnvel aldrei lækni í einhverjum tilfellum, þá held ég að eðlilegt sé að huga að þessum hugtökum, eins og þarna er í rauninni verið að gera.
Breytingartillögurnar eru æðimargar og eru lagðar fram á sérskjali. Mig langar aðeins að stoppa við b-lið 10. gr., sem er nokkuð stór og veigamikil breyting. Þar er nefndin í rauninni að reyna að skýra betur, sem ég fagna, hvenær menn geta stöðvað atvinnurekstur. Þar segir, með leyfi forseta:
„Við d-lið bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ekki skal stöðva atvinnurekstur nema að því marki sem starfsemin felur í sér hættu á útbreiðslu farsóttar, svo sem vegna fjölda fólks sem þar kemur saman eða návígis þess eða snertingar.“
Ég skal ekki segja hvort þetta er nógu skýrt en ég held hins vegar að það þurfi að vera alveg ljóst að atvinnurekstur verði ekki stöðvaður nema af gríðarlegri nauðsyn eða neyð. Þá kann jafnvel að vera að einhvers konar aðhald þurfi á framkvæmdarvaldið þegar kemur að því að taka ákvörðun um að stöðva atvinnurekstur. Aðhaldið getur verið það að sé rekstur stöðvaður sé ljóst að viðkomandi muni fá fullar bætur eða bætur fyrir það tap sem viðkomandi verður fyrir. Auðvitað getur lokun rekstrar einstaklings, sem rekur einhverja þjónustu eða sölu eða hvað það er, leitt til þess að viðkomandi missir ekki bara fyrirtæki sitt heldur jafnvel heimili og annað, jafnvel af ástæðu sem hann ræður ekkert við. Svo eru kannski dæmi um að menn hafi hunsað eða verið kærulausir og slíkt. Í það minnsta tel ég að skoða þurfi mjög vandlega að ef framkvæmdarvaldið á að hafa vald sem þetta þá sé einhvers staðar aðhald á móti varðandi t.d. notkun á þessum lokunum og slíku. Það er mjög mikilvægt að við skerðum ekki atvinnufrelsið eða starfsemina að óþörfu. Ég geri mér alveg grein fyrir því að vandasamt er að skilgreina hvenær það er, en við verðum samt að gera tilraun til að komast sem næst því til að öllum sé ljóst hvar takmörkun er á að gera slíkt.
Hér kom fram í andsvari hjá hv. þm. Birgi Þórarinssyni að Samtök atvinnulífsins hefðu rætt að gera þyrfti óháða rannsókn. Ég tek undir það með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að það verði gert. Við þurfum að læra af þessu, að sjálfsögðu, og við þurfum að móta umhverfi okkar, reglur og ferla þannig að tjón verði sem minnst, að sjálfsögðu bæði fyrir heilsu og líf fólks og einnig fyrir efnahagslífið og samfélagið í heild. Það að gera það ekki, að velta ekki þessum hlutum fyrir sér og rannsaka þá með það markmið að læra af þeim væri mjög óábyrgt. Þó að maður vilji ekki segja það er ekkert í hendi að einhvers konar veira sem þessi eða eitthvað annað skelli ekki á okkur. Þá er mjög mikilvægt fyrir okkur að vera á þeim stað að þekkja, vita og hafa lært, geta tekið ákvarðanir fyrr, vita að við þurfum að sýna fólki meira inn í framtíðina, sýna á spilin, hvað menn ætla sér, setja niður vörður, setja niður mörk: Ef við förum þarna þá gerist þetta og ef það gerist þá gerist hitt o.s.frv. Þetta er það sem hefur einna helst skort. Það er sú mikla óvissa sem verið hefur. Svo hefur ekki alltaf farið saman hljóð og mynd finnst manni. Maður hefur stundum velt því fyrir sér líka hver beri í rauninni ábyrgð í þessu máli. Eru það embættismennirnir, þessir fínu embættismenn sem eru að reyna að gera sitt besta? Eru það stjórnmálamennirnir? Eru þeir einhvern veginn búnir að vísa valdinu til embættismannanna í þessum málum? Við þurfum að hafa þetta allt á hreinu.
Ég vil svo undir lokin, herra forseti, koma því að líka að núna þurfum við, og hefðum örugglega átt að gera það fyrr, en í það minnsta núna þegar við höfum séð hvernig Evrópusambandið hefur haldið á þessum bóluefnamálum, að fara mjög varlega í að stökkva upp á vagninn með Evrópusambandinu. Það virðist vera mikil skriffinnska og klúður þar í gangi og alla vega um tíma var hver höndin upp á móti annarri og menn að ota sínum tota, vildu koma lyfjaframleiðslu í sínu landi að o.s.frv. Þetta er ekki klúbbur sem við eigum heima í. Þetta er risastórt batterí sem hefur fjarlægst bæði íbúa og stjórnmálamenn í Evrópu. Það lifir einhvern veginn sjálfstæðu lífi, ætla ég að leyfa mér að segja. Við eigum þess vegna að taka fyrst þann kost að gera hlutina sjálf, hugsanlega í samráði eða samstarfi með einstökum ríkjum ef það er betra, ekki að stökkva bara á vagninn og segja: Þetta er auðveldasta leiðin.
Þá er um leið mikið áhyggjuefni það sem hefur komið fram um að á Íslandi sé ekki kunnátta til að meta eða sannreyna flókin og mikil lyf. Ég viðurkenni, herra forseti, að ég þekki ekki hvort við höfum einhverja þekkingu og getu til að kveða upp úr um slíkt en hins vegar væri mjög áhugavert að komast að því. Ég vildi hins vegar koma því á framfæri að ég held að þetta hafi verið mistök. Það er einhvern veginn alltaf og þarf að breytast, það á ekki endilega að vera fyrsti kostur að fara upp í lestina með Evrópusambandinu.
Við höfum séð að mörgum gengur mjög vel í bólusetningum og að koma lyfjunum í þegna sína. Það er að sjálfsögðu frábært. Við höfum hins vegar frekar óljósar heimildir fyrir því hvernig þetta muni ganga fyrir sig hér á landi. Menn vona ýmsa hluti. Menn gera sér vonir og áætla, en það þyrfti kannski að sýna okkur planið. Hvernig er planið nákvæmlega? Það hangir svolítið á þeim samningum sem höfum ekki fengið að sjá. Þannig hef ég alla vega skilið málið, herra forseti.
Fram undan er áfram barátta við þennan vágest. Vonandi tekst okkur að vinna bug á honum fyrr en margt bendir til. Það ræðst töluvert mikið af því hvenær við náum að bólusetja þjóðina, bólusetja nógu marga. Eftir stendur að ef við verðum framarlega í flokki virðist nú samt sem áður stór hluti af þessu ári, sem við ætluðum að nýta til uppbyggingar, farinn í súginn. Það kallar á endurskoðun á ýmsum útgjöldum ríkisins og öðru slíku. Það er því enn þá mikið verk að vinna, herra forseti, sem ég vona að við getum sameinast um að leysa með sem bestum hætti.