náttúruvernd.
Herra forseti. Við erum komin í örstuttu ræðurnar sem er reyndar nýlunda á Alþingi og veit vonandi á gott. Ég mun hafa þessa ræðu stutta en ég flyt nefndarálit með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, sem eru frá 2013.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið ellefu gesti til sín og sjö umsagnir og höndlað þær eins og vera ber. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um náttúruvernd sem tengjast málsmeðferð við friðlýsingar og undanþágum frá ákvæðum friðlýsinga. Þá er einnig lagt til nýtt ákvæði um kortlagningu óbyggðra víðerna.
Það eru þrír kaflar í nefndarálitinu og sá fyrsti er um auglýsingu tillögu að endurskoðaðri náttúruminjaskrá. Í 2. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á 36. gr. laganna um auglýsingu tillögu um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár þess efnis að í stað þess að tillagan sé auglýst í prentmiðlum skuli hún auglýst á vefmiðlum, í Lögbirtingablaði og með öðrum hætti eftir því sem við á. Þar með verður skylt að auglýsa í Lögbirtingablaði og á vefmiðlum en birting auglýsingar á öðrum vettvangi er háð mati Umhverfisstofnunar hverju sinni. Nefndin bendir á að mikilvægt er að auglýsingar séu birtar með sannanlegum hætti og á vettvangi þar sem ætla má að sem flestir sem hagsmuna kunna að gæta sjái hana. Með hliðsjón af því telur nefndin fara vel á því að auglýsing sé birt í öllum helstu fjölmiðlum á viðkomandi svæðum til viðbótar við almenna birtingu í Lögbirtingablaði og á vefmiðlum. Svo mikið um auglýsingu á tillögu að endurskoðaðri náttúruminjaskrá.
Í öðrum kafla er fyrst fjallað um áform um friðlýsingu og þar segir að samkvæmt 38. gr. sé ráðherra heimilt að ákveða friðlýsingu með samþykki landeiganda og viðkomandi sveitarfélags þótt ekki sé gert ráð fyrir henni í framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár. Áður skulu friðlýsingaráformin þó kynnt í samræmi við 36. gr. laganna. Þar er kveðið á um að frestur skuli ekki vera skemmri en átta vikur frá birtingu auglýsingar en í greinargerð frumvarpsins kemur fram að sá langi kynningartími byggist á því að verið sé að kynna endurskoðaða náttúruminjaskrá sem sé mun umfangsmeiri en einstaka friðlýsing sem ráðherra sé heimilt að ákveða samkvæmt 38. gr. Er með frumvarpinu lagt til að kynningartími áforma vegna einstakra friðlýsinga verði styttur í tvær vikur. Fram komu sjónarmið þess efnis að tveggja vikna frestur gæti verið of stuttur og var þar m.a. vísað til þess að umsagnaraðilar eru fjölbreyttur hópur sem á misauðvelt með að bregðast skjótt við. Einnig komu fram sjónarmið um að ekki væri kveðið skýrt á um þau tilvik friðlýsingar þar sem eignarnám kemur til álita.
Nefndin bendir á að áform um friðlýsingu eru undanfari þess að drög að friðlýsingarskilmálum fyrir viðkomandi svæði séu unnin. Í þeim tilvikum sem auglýsa þarf áform þarf jafnframt samþykki landeiganda og viðkomandi sveitarfélags fyrir friðlýsingunni og því allar líkur á að unnið sé að málinu í sátt. Hins vegar telur nefndin mikilvægt að tryggt sé að allir aðilar, þar á meðal minni aðilar, hafi svigrúm til að taka saman vandaða umsögn og leggur því til að fresturinn verði fjórar vikur að lágmarki. Nefndin leggur áherslu á að um lágmarksfrest er að ræða og ekkert því til fyrirstöðu að Umhverfisstofnun lengi frestinn telji stofnunin þörf á því. Nefndin bendir einnig á að ferill friðlýsingar er skýr í lögum um náttúruvernd og er þar m.a. kveðið á um rétt landeigenda til bóta ef friðlýsing hindrar landnýtingu eða takmarkar hana umfram það sem telja má til almennra takmarkana eignarréttar. Þá hefur ráðherra heimild til beitingar eignarnáms samkvæmt 43. gr. laganna og fer um framkvæmd eignarnáms og ákvörðun bóta eftir almennum reglum.
Hér er einnig stuttur kafli um drög að friðlýsingarskilmálum. Samkvæmt 4. gr. frumvarpsins er lagt til að frestur til að gera athugasemdir við drög að friðlýsingarskilmálum verði styttur úr þremur mánuðum í sex vikur. Fram kom að sá tími kynni að vera of stuttur þar sem drög að friðlýsingarskilmálum gætu verið afar umfangsmikil. Nefndin tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð frumvarpsins um að þriggja mánaða fresturinn sé óþarflega langur og telur brýnt að tryggja skilvirkni og að ferli friðlýsinga dragist ekki úr hófi. Ýmsar tillögur, svo sem skipulagstillögur og skýrslur, svo sem mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, er með sex vikna kynningarfresti. Þær eru yfirleitt umfangsmeiri en friðlýsingarskilmálar einstakra svæða. Með vísan til þess telur nefndin að sex vikur til að koma að athugasemdum sé fullnægjandi að lengd.
Að lokum er kafli um kortlagningu óbyggðra víðerna og ég ætla, með leyfi hæstv. forseta, að lesa einfaldlega þennan kafla:
Í 6. gr. frumvarpsins er lagt til nýtt ákvæði um kortlagningu óbyggðra víðerna. Ráðherra verði heimilt að setja reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna. Þar verði kveðið á um þau viðmið og forsendur sem liggi til grundvallar kortlagningunni og skuli kortið vera til leiðbeiningar fyrir stjórnvöld við stefnumótun um verndun landslags og aðra landnotkun. Bent var á að ekki væri skýrt hver ætti að sjá um kortlagninguna, hvernig meðferð hennar yrði háttað, hvaða réttaráhrif hún hefði og hvaða aðkomu hagaðilar hefðu að vinnunni. Þá kom fram að kveða ætti fastar að orði og að kortlagningin ætti ekki einungis að vera til leiðbeiningar fyrir stjórnvöld. Nefndin áréttar að ekki er gert ráð fyrir að kortlagning óbyggðra víðerna hafi réttaráhrif í för með sér. Kortlagningin mun hins vegar koma sér vel fyrir sveitarfélög og aðra aðila við ákvörðunartöku um skipulag og landnotkun. Í ljósi þess að kortlagningunni er ekki ætlað að binda hendur skipulagsyfirvalda leggur nefndin til þá orðalagsbreytingu að í stað þess að kortið skuli vera til leiðbeiningar fyrir stjórnvöld verði það til upplýsingar. Þá bendir nefndin á að nánara fyrirkomulag, þar á meðal um hver muni sjá um kortlagninguna, verði útfært í reglugerð. Fyrir liggur að Skipulagsstofnun hefur þegar unnið tillögur að kortlagningu óbyggðra víðerna á hálendi Íslands og látið vinna skýrslu um flokkun og kortlagningu landslagsgerða. Hún heitir Landslag á Íslandi – flokkun og kortlagning landslagsgerða á Íslandi, og var gerð á vegum Eflu og Land Use Consultants árið 2020. Þetta plagg getur gagnast við kortlagningu víðerna. Því má telja eðlilegt að Skipulagsstofnun haldi áfram utan um verkefnið með aðkomu annarra fagstofnana og hagaðila, m.a. Náttúrufræðistofnunar Íslands sem einnig hefur unnið að kortlagningu víðerna.
Nefndin leggur til smávægilega lagfæringu á fyrirsögn í 6. gr. og ég hef farið með hana nú þegar, hún heitir nú Kortlagning óbyggðra víðerna.
Breytingartillögurnar eru auk þess að í stað orðsins „tvær“ í a-lið 3. gr. komi: fjórar. Þarna er átt við fjórar vikur. Einnig við 6. gr., að í stað orðsins „leiðbeiningar“ í 2. mgr. efnisgreinar komi: upplýsinga.
Undir álitið rita Bergþór Ólason, formaður hv. umhverfis- og samgöngunefndar, Ari Trausti Guðmundsson, sem er framsögumaður, Guðjón S. Brjánsson, Hanna Katrín Friðriksson, Jón Gunnarsson, Karl Gauti Hjaltason, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Líneik Anna Sævarsdóttir og Vilhjálmur Árnason. Sara Elísa Þórðardóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk áliti þessu.
Þar með, herra forseti, hef ég lokið örstuttri ræðu um þetta nefndarálit.
(Forseti (BN): Forseti þakkar hv. þingmanni fyrir að vera stuttorður. Það gleður forseta mjög.)