151. löggjafarþing — 51. fundur, 2. feb. 2021.
breytt skipun þingvikunnar.
Á fundi forseta með formönnum þingflokka föstudaginn 29. janúar var gert samkomulag um breytta skipun þingvikunnar. Framvegis hefjast þingfundir á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 13 en á mánudögum verða ekki þingfundir heldur eingöngu nefnda- og þingflokksfundir. Samkomulagið mun gilda nú í febrúar og mars í tilraunaskyni og er ætlunin ekki síst að sjá hvort þetta skipulag muni reynast vel í tengslum við innleiðingu á styttingu vinnuvikunnar.