151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

aðgerðir gegn atvinnuleysi.

[14:20]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég get ekki annað en tekið undir með hv. þingmanni hvað varðar áhyggjur af atvinnuleysinu í landinu. Það er versta birtingarmynd þess að við göngum nú í gegnum mestu efnahagslægð sem við höfum séð undanfarna öld. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru einmitt sniðnar að því að draga úr dýpt þessarar efnahagslægðar með því að standa með fyrirtækjum í gegnum erfiðasta tímann með fjölbreyttum úrræðum sem eru til þess fallin að viðhalda ráðningarsambandi þar sem það er hægt, horfast í augu við stöðuna þar sem það er ekki hægt, veita stuðning í formi lána og beinna stuðningsgreiðslna af meira umfangi heldur en við höfum áður séð og fara á sama tíma í fjárfestingarátak sem við höfum fjármagnað. Fjárfestingarstig hins opinbera er í sjálfu sér ekki sérstakt áhyggjuefni í lengri tíma tilliti en það er samt rétt að það veldur áhyggjum að sveitarstjórnarstigið virðist ekki hafa burði til að auka við fjárfestingar jafnt og ríkið er að gera. Það sem er mesta áhyggjuefnið varðandi fjárfestingu í landinu er auðvitað það hversu mikið atvinnuvegafjárfestingin dregst saman.

Við erum nýlega búin að afgreiða fjárlög. Það er ekki nema rúmur mánuður síðan nýtt ár gekk í garð. Við erum að fylgjast mjög náið með stöðu atvinnuþróunar í landinu, þ.e. hvernig atvinnuleysistölurnar breytast frá mánuði til mánaðar, og við munum grípa inn í þar sem við teljum að það geti skilað árangri. Við trúum því líka að stuðningur verði við það hér á þinginu ef þess gerist þörf. En við þurfum auðvitað að vera skilvirk og ég fagna þessum áherslum sem mér finnst hafa heyrst allt of lítið frá hv. þingmanni um að við þurfum að fara í arðbærar fjárfestingar og þurfum að sækja fram og huga að framtíðinni en ekki bara að fjölga opinberum starfsmönnum sem hefur verið meginlínan til þessa.