aðgerðir gegn atvinnuleysi.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra byrjaði vel en endaði svo á ómálefnalegri klisju og af því að nú er 2. febrúar, sem nefnist Groundhog day í Bandaríkjunum og flestir tengja við þann dag, er þetta að verða dálítið hvimleitt hjá ráðherra þegar hann lendir í vandræðum. Það er enginn metnaður í því að ætla að draga úr atvinnuleysi í sögulegri kreppu um bara 1 prósentustig. Þrátt fyrir boðað átak í fjárfestingum er ekki útlit fyrir að fjárfestingar nái langtímameðaltali sem hlutfall af landsframleiðslu á næstu fimm árum. Það þýðir ekkert að vísa bara á sveitarfélögin vegna þess að við höfum bent á það allt frá því í vor að sveitarfélögin sem hafa sögulega staðið fyrir 50% af öllum opinberum fjárfestingum þurfa að hafa getu til að ráðast í þær. En viðkvæðið hefur alltaf verið það sama: Þau þurfa ekki aðstoð. Allt of lítið hefur verið gert fyrir þau. En ég skora á ráðherra að koma með okkur í að auka opinberar fjárfestingar í landinu.