151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

aðgerðir gegn atvinnuleysi.

[14:23]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég tel að hv. þingmaður horfi með röngum hætti á stöðuna. Við beitum ríkisfjármálunum af fullu afli til að koma í veg fyrir aukið atvinnuleysi. Þegar hv. þingmaður segir: Það munar bara 1% í atvinnustiginu það sem ríkisstjórnin er að gera, þá tekur hann ekki með í reikninginn að við tökum á okkur 320 milljarða halla á þessu ári í framhaldi af tæplega 300 milljarða halla ársins í fyrra. Ef við hefðum valið aðra leið og sagt: Ja, við þurfum bara að loka þessu fjárlagagati sem fyrst, þá væru þessir 600 milljarðar ekki þarna úti í hagkerfinu einmitt í þeim tilgangi að koma í veg fyrir stóraukið atvinnuleysi. Þetta er það sem málið snýst um ef menn vilja spyrja að því hvað ríkisstjórnin er að gera. Við rekum ríkissjóð með langmesta fjárlagahalla sem nokkru sinni hefur sést á Íslandi og meiri halla en þekkist í löndunum í kringum okkur. Það er staðreynd málsins. Við setjum 320 milljarða einmitt í þennan tilgang. Samfylkingin ætlar síðan að leggjast gegn því að við losum um eignir til þess að geta fjármagnað þessar aðgerðir og vill að við tökum hærri lán. (Forseti hringir.) Og það er það sem er svo óábyrgt í málflutningi ykkar. (LE: … á engum vöxtum.)