samkeppnisstaða fyrirtækja og tollskráning landbúnaðarvara.
Virðulegur forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem ráðherra samkeppnismála. Á síðasta ári kom fram að ósamræmi væri milli innflutningstalna ýmissa búvara til Íslands og útflutningstalna frá öðrum löndum, þ.e. ESB-löndum og Noregi. Skoðun starfshóps fjármálaráðuneytisins rennir enn frekari stoðum undir það. Þá liggur fyrir að innflutningur á svokölluðum jurtaosti hvarf nánast af innflutningsskýrslum frá og með september á síðasta ári. Alls voru á árinu flutt inn 216 tonn, þar af einungis 28 tonn síðustu fjóra mánuði ársins. Enginn innflutningur var t.d. frá Bretlandi á jurtaosti síðustu fjóra mánuði ársins en hafði á fyrstu átta mánuðum ársins að jafnaði verið tíu tonn á mánuði. Svo er einnig farið með innflutning frá fleiri löndum.
Hefur ráðherrann, sem ráðherra samkeppnismála, látið skoða þetta misræmi? Hefur ráðherrann kannað hvaða áhrif þessi ólöglegi innflutningur hefur haft á samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja og framleiðenda búvara á markaði sem fara að lögum? Hér er vitaskuld ekki verið að vísa til þessa ostainnflutnings eingöngu heldur einnig til innflutnings á öðrum búvörum sem sambærileg staða hefur komið upp með. Þar má nefna eitt mál þessa efnis sem er nú þegar til meðferðar fyrir dómstólum og varðar innflutning á kjöti. Þar er ákært fyrir brot gegn tollalögum og lögum um peningaþvætti. Þá hefur ríkisskattstjóri sagt að fleiri mál af sama toga séu til rannsóknar. Í bréfi hans frá 1. október til lögmanna hagsmunaaðila kom fram að ákveðnir innflytjendur væru um þessar mundir til skoðunar hjá embættinu og gætu til að mynda ekki tollafgreitt vörur án skoðunar eða samþykkis tollyfirvalda.
Ég spyr því hæstv. ráðherra: Mun ráðherra beita sér fyrir því að hlutur innlendra framleiðenda búvara, sem hafa orðið fyrir tjóni vegna ólöglegs innflutnings, verði réttur með einhverjum hætti og þá hvernig? Verður það gert með auknum greiðslum til bænda eða mun ráðherra beita sér fyrir því með fjármálaráðherra að skatturinn innheimti vangoldna tolla og aðflutningsgjöld þeirra innflutningsfyrirtækja sem fluttu jurtaostinn ólöglega inn í landið?