samkeppnisstaða fyrirtækja og tollskráning landbúnaðar.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég kannast aðeins við það mál sem hv. þingmaður viðrar hér, þó er það ekki á mínu borði. Það er ekki í sérstakri skoðun í ráðuneyti mínu og við höfum ekki farið í sérstaka skoðun, enda heyrir tollurinn undir fjármála- og efnahagsráðherra og löggjöfin sömuleiðis. Einstök mál hjá Skattinum eða eftir atvikum hjá Samkeppniseftirlitinu hef ég ekki yfirsýn yfir og hef ekki upplýsingar um og stíg svo sem heldur ekki inn í. Þannig að mitt almenna svar er að reglur þurfa að sjálfsögðu að vera skýrar og gagnsæjar. Það þarf að vera fyrirsjáanleiki í þeim þannig að fólk sem á að fara eftir þeim geti gert það með fullnægjandi hætti. Verði misbrestur á því treysti ég því að það fari sína leið. Og ef það er einhver misbrestur á framkvæmd kerfisins eða stofnana í því eftirliti þá er það orðið hlutverk okkar að laga það. Það er ekki á mínu borði þannig að ég hef ekki aðrar upplýsingar en þær sem hv. þingmaður viðrar hér. En öllu skiptir að reglurnar séu skýrar og að farið sé eftir þeim. Ef ekki er farið eftir þeim þá erum við með kerfi sem á að grípa það.