samkeppnisstaða fyrirtækja og tollskráning landbúnaðarvara.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég er fullmeðvitaður um að málefni tollsins og skattsins heyra undir fjármálaráðherra og almenn mál landbúnaðarins auðvitað undir landbúnaðarráðherra en samkeppnismál heyra undir hæstv. ráðherra. Þess vegna kemur mér svolítið á óvart ef afstaða hæstv. ráðherra er sú að aðkoma ráðuneytisins sé í rauninni eingöngu í því samhengi að forma lagarammann sem Samkeppniseftirlitið starfar innan og undir en hafi ekki tilefni til að stíga inn í einstök mál sem þó heyra svo sannarlega undir ráðuneytið eins og þetta mál er svo skýrt dæmi um, þar sem samkeppnisbrotið er ekki síður alvarlegt en það brot sem snýr að vangoldnum gjöldum og sköttum.