samkeppnisstaða fyrirtækja og tollskráning landbúnaðarvara.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Fyrsta spurningin: Liggur fyrir brot á samkeppnislögum? Liggur fyrir brot á tollalögum? Ef grunur er á um að brot sé einhvers staðar skiptir máli brot á hvaða lögum varðandi hvaða leið það fer í stjórnkerfinu. Jafnvel þótt það fari til að mynda inn í Samkeppniseftirlitið þá fer það sína leið þangað án þess að koma inn á mitt borð. Regluverkið um það hvernig á að skrá, hvað má flytja inn og afleiðingar af því ef það er ekki rétt gert er allt tryggt í kerfinu án þess að það rati inn á mitt borð.
Ég segi einfaldlega: Ef reglurnar eru ekki nægilega skýrar þurfa þær að vera skýrar. Ef þær eru hins vegar skýrar og ekki er farið eftir þeim þá hefur það afleiðingar. Kerfið er þannig upp sett að það á að grípa það. Ég hef ekki haft tilefni til að taka málið með einhverjum öðrum hætti (Forseti hringir.) til sérstakrar skoðunar inn á mitt borð.