afgreiðsla tekjufalls- og viðspyrnustyrkja.
Herra forseti. Við stöndum með fyrirtækjum, veitum stuðning í formi lána og styrkja, segir ráðherra. En nú er það svo að afhending tekjufallsstyrkja er föst hjá Skattinum. Aðstoðin berst ekki, sést ekki í verki. Seinagangur, tæknileg vandamál og undirmönnun einkenna framkvæmdina á bæði umsóknum og afhendingu, sem virðist vera mjög svipað og gerðist hjá Vinnumálastofnun í vor og fram eftir sumri þar sem kerfið annaði ekki eftirspurninni.
Margir lenda í því að fá bara tæknilega galla í kerfinu þar sem síður birtast ekki og ekki er hægt að fylla inn í reiti og fólk bíður og bíður. Eftir stóru loforðin um að tekjufallsstyrkir skiluðu sér 10. desember, svo fyrir jól, svo fyrir nokkrum dögum, þá var núna undir lok janúarmánaðar 2021 ekkert komið í hús hjá meiri hluta rekstraraðila.
Síðan eru það viðspyrnustyrkirnir. Þegar spurt er hjá Skattinum hvenær hægt verði að sækja um viðspyrnustyrkina er fátt um svör: Í byrjun febrúar, um miðjan febrúar, þetta er bara enn í vinnslu, ég get ekkert sagt. Þetta eru svörin sem fást. Þessi seinagangur stórskaðar rekstur og fyrirtæki sem nú þegar eru löskuð vegna ástandsins og hafa jafnvel enga aðstoð fengið frá því í mars 2020. Á síðu Stjórnarráðsins er talað um að Skatturinn verði kominn með möguleika til þess að sækja um þessa styrki í janúar. Nú er kominn febrúar og engin tilkynning er um það hjá Skattinum.
Síðan er enn alvarlegra varðandi afborganir af lánum úr Ferðaábyrgðasjóði, fyrsta afborgunin er núna eftir rétt tæpan mánuð, 1. mars. Hvernig eiga fyrirtæki sem eru enn án innkomu að borga af þessum lánum? Þetta eru stór, mikilvæg atriði hérna af því að það er búið að drífa þessi mál í gegnum þingið. Þingið stóð sig með því að segja: Já, þetta eru atriði sem við þurfum að standa vel að. En nú er komið á annan mánuð og fólk hefur ekki enn fengið aðstoðina sem þingið samþykkti.