afgreiðsla tekjufalls- og viðspyrnustyrkja.
Virðulegi forseti. Við afgreiddum hér undir lok síðasta árs mjög stór mál sem kölluðu á mikinn undirbúning í stofnunum ríkisins sem eiga að sjá um afgreiðslu þessara styrkja og stuðningsaðgerða. Ég ætla bara að segja að það eru vonbrigði að það skyldi hafa tafist jafn lengi og raun ber vitni að geta tekið við og afgreitt þessi mál. Þó er það þannig í tilviki tekjufallsstyrkjanna að við erum byrjuð að greiða út milljarða og það eru undirbúningsaðgerðir í gangi til að geta síðan tekið við og afgreitt viðspyrnustyrkina.
Það eina sem ég get í raun og veru sagt um þetta er að allur kraftur sem hægt er að setja í að klára forritun, undirbúning umsókna og afgreiðslu þeirra hefur verið settur í málið. Það er í raun og veru það eina sem ég get sagt. Við höfum verið í nánum samskiptum við Skattinn sem tekur að sér þetta verkefni. Hann hefur á undanförnum árum leyst með snilldarlegum hætti úr risastórum krefjandi verkefnum og allir sammála í raun og veru um að enginn hefði getað gert þetta betur af þeim sem komu til greina til að taka við þessu erfiða verkefni. En því miður hefur þurft að ganga úr skugga um að tæknilegar lausnir væru fullhannaðar áður en opnað er fyrir umsóknarferli og afgreiðslu. Það reynir á þolinmæði marga og þess vegna er unnið dag og nótt við að leysa úr þessu.
Ég ætla aðeins að segja varðandi Ferðaábyrgðasjóð að ferðamálaráðherra hefur með reglugerð breytt dagsetningunni sem vísað var til þannig að hún var færð fram í desember á þessu ári.