151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

afgreiðsla tekjufalls- og viðspyrnustyrkja.

[14:42]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt með ferðastyrkinn úr Ferðaábyrgðasjóði. Það gerist margt hérna á skömmum tíma en annað gerist frekar seint. Þetta er svipað og var í Vinnumálastofnun, eins og við höfum fengið upplýsingar um, þar sem fólk sem var á atvinnuleysisbótum þegar álagið kom fékk seint og síðar meir greitt fyrir næsta mánuð eða þarnæsta. Það voru tafir sem komu í veg fyrir að fólk fengi réttindi sín á viðeigandi tíma. Maður myndi halda að eftir þá reynslu værum við betur vakandi fyrir því hvar álagið er. Í hruninu t.d. var álag í þremur ráðuneytum, eitthvað svoleiðis, lítið sem ekkert álag í öðrum. Hvernig getum við betur brugðist við þessum álagspunktum til að koma í veg fyrir að boltinn detti niður þar sem mikilvægt er að hafa hann á lofti?