151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

sameining sveitarfélaga.

[14:47]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða fyrirspurn um mjög mikilvægt málefni. Það er rétt sem hann segir að talinn er umtalsverður ávinningur af sameiningu á margan hátt. Einn þátturinn er fjárhagslegur. Í tengslum við vinnu við þetta frumvarp voru tveir aðilar fengnir til að meta það og eftir endurmat eru þeir báðir komnir á þá skoðun að það séu um 5 milljarðar sem þar gætu sparast árlega, sem eru umtalsverðir fjármunir. Annar þeirra reiknaði út að núvirt inn í hið óendanlega væru það 134 milljarðar, sem gætu nýst í að bæta þjónustu við íbúa á þeim svæðum. Ég tel að sá þáttur geri það að verkum að það sé þess virði að það sé skoðað. En það eru fjölmargir aðrir þættir sem leggjast þarna að, eins og lýðræðisstaðan. Það er erfiðara í fámennum sveitarfélögum að fá fólk til starfa, til setu í sveitarstjórn. Þar er mikið brottfall, ef maður getur kallað það svo, eins og við þekkjum úr skólunum.

Í framsöguræðu minni fór ég einmitt yfir það að þegar við lögðum af stað varð víðtækari stuðningur við að fara þessa leið, m.a. eftir samþykkt sambandsins, en síðan var haldið aukalandsþing þar sem fram kom að stuðningurinn hefur minnkað. Við höfum heyrt sjónarmið hér úr þingsal um að það sé sérkennilegt að finna einhverja tölu. Hún er í sjálfu sér ekki lögmál í huga neins og alls ekki í mínum. Að nálgast málið með einhverjum öðrum hætti var hluti af því sem ég nefndi í framsöguræðu minni, að finni menn aðrar leiðir hér í þinginu er ég að sjálfsögðu tilbúinn til þess. Ég hvatti þingheim til þess og er þess vegna ánægður að heyra að hv. þingmaður kemur hingað upp og spyr um viðbrögð mín. Þá get ég ítrekað þau; ég er algerlega opinn fyrir öllum þeim leiðum sem gera það að verkum að markmiðin um sterkara sveitarstjórnarstig náist.