sameining sveitarfélaga.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin við þessum hugmyndum sem ég tel að hafi verið jákvæð og það er gott. Auðvitað er meginatriðið að tryggja að þjónusta sé veitt, að borgararnir fái þjónustu. Fyrirkomulag sveitarstjórnanna, hversu umfangsmiklar þær eru eða hversu fjölmenn sveitarfélög, skiptir ekki höfuðmáli. Það er auðvitað aðalatriðið.
Mig langar í framhaldi af þessu að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem hefur talsvert umleikis og hefur margvísleg hlutverk, m.a. náttúrlega að beita sér fyrir jöfnun af ýmsu tagi, eins og nafnið gefur til kynna, og honum hafa verið falin sérstök verkefni. Einhvern veginn finnst mér á köflum að beita mætti þessum sjóði miklu markvissar til að ná frá fram (Forseti hringir.) markmiðum um stærri og öflugri sveitarfélög og betri þjónustu en nú er gert.
Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort við getum ekki stigið stærri skref (Forseti hringir.) í því að nota jöfnunarsjóðinn sem markvissara stýritæki í þessum efnum.