sameining sveitarfélaga.
Herra forseti. Jú, það er kannski akkúrat það sem við erum að gera með þessum fjárhagslegu hvötum sem voru hluti af þingsályktunartillögunni og eru reyndar í frumvarpinu sem fjallar um lágmarksíbúafjölda líka, þ.e. við vorum með ákveðna fjárhagslega hvata og reglur en þeim höfum við breytt þannig að reglurnar eru orðnar skýrari um að við sameiningu sveitarfélaga fái menn ákveðinn fjárhagslegan stuðning.
Í þessu frumvarpi og þeim ákvörðunum sem við höfum tekið höfum við verið að tala um mun stærri og sterkari fjárhagslegan stuðning, allt að milljarð á ári í tíu, tólf ár og við getum verið að tala um að á bilinu 12–15 milljarðar myndu renna til sveitarfélaga sem færu í svona sameiningarferli. Ég er hlynntur þeirri leið, þessum hvötum. Einstaka aðilar hafa minnst á að hægt væri að beita jöfnunarsjóðnum sem einhvers konar sveltistefnu og nýta tækifærin þar til að svelta menn til einhvers ákveðins hlutar. Ég styð það ekki vegna þess að það færi gegn því sem augljóst er að jöfnunarsjóður, eins og hv. þingmaður réttilega sagði, á að gera. (Forseti hringir.) Hann á að jafna aðstöðumun. Þannig að hin leiðin er fær og við erum að fara hana.