151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

þróunarsamvinna og háskólar Sameinuðu þjóðanna.

[14:52]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Utanríkismál eru ekki rædd nógu oft í þessum þingsal að mínu mati. Ég ætla að bera upp mál varðandi þróunarsamvinnu sem er jú margþætt eins og allir vita og Ísland hefur margt til að bera þar, þekkingu, fé og hugsjónir, bæði mannúðar og jafnréttis. Náttúruvá er hluti veruleikans á Íslandi en hún er það víða annars staðar, bæði í Suður-Ameríku, Afríku og víðar og við höfum þekkingu á þessu sviði varðandi vöktun, rannsóknir, viðbrögð og ýmislegt fleira varðandi almannavarnir. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort væri unnt að hans mati að auka umsvif og fjárveitingar til þróunarsamvinnu með því að efna til samvinnu um vöktun og viðbrögð við náttúruvá, einkum eldvirkni og jarðskjálfta, við ríki sem þess óska.

Að öðru. Það er þekkt að við höfum haldið úti námskeiðum eða skólum sem tengdir voru Háskóla Sameinuðu þjóðanna og er á sviðum jarðhita, landgræðslu, fiskveiða og jafnréttis. Nú eru þessi námskeið eða þessir skólar komnir yfir til UNESCO. Þetta hefur gengið vel og hefur styrkt og aukið á framþróun þeirra samfélaga sem við höfum haft samvinnu við. Þetta hefur hlotið mjög jákvæðar undirtektir og umsagnir í úttektum og skoðunum. Mig langar að fá að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé gerlegt og æskilegt að koma á fót fimmta skólanum á vegum Sameinuðu þjóðanna hérlendis. Það væri skóli sem leiðbeindi um nýsköpun í matvæla-, fæðubótar- og líftækniiðnaði. Þarna eigum við ýmislegt til að deila með nágrannaríkjum að mínu mati og stuðla að framförum í þróunarstarfi og góðum árangri, t.d. í Afríku eða Suður-Ameríku eða víðar, og þetta tengist líka ásetningi stjórnvalda um að efla þátt loftslagsmála í þróunarsamvinnu.