þróunarsamvinna og háskólar Sameinuðu þjóðanna.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið eða svörin og þekki það að við höfum jú komið að náttúruvá með ýmsum hætti. Við erum á góðum heimavelli á vissum sviðum sem ég er alveg sannfærður um að við gætum deilt, við skulum segja með þeim þjóðum sem búa í Austur-Afríku, í Sigdalnum mikla þar sem mikil eldvirkni er, og eins í Suður-Ameríku þar sem eru mörg lönd sem glíma bæði við stóra jarðskjálfta og eldvirkni. Við gætum hugsanlega hjálpað til þar við að bæta vöktunarkerfin.
Varðandi skólana held ég að verulegt sóknarfæri sé í fimmta skólanum sem væri þá á sviði nýsköpunar vegna þess að við erum komin býsna langt á vissum sviðum, sérstaklega sem tengjast mat og hátækni. Ég er því alveg viss um að við hefðum þar sóknarfæri líka.