151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

þróunarsamvinna og háskólar Sameinuðu þjóðanna.

[14:58]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Bara svo það sé sagt varðandi spurningar hv. þingmanns þá finnst mér þær báðar vera þess eðlis að við þyrftum að skoða þær sérstaklega. Ég vil hins vegar nota tækifærið og segja aðeins frá því hvað við erum að gera á þessu sviði núna. Þó svo að við séum ekki komin með nein áform um það núna að bæta við fleiri skólum undir GRÓ, þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, munum við auðvitað gera það. Það liggur alveg fyrir. Við erum að auka vægi hennar. Þetta eru hugmyndir sem við eigum að skoða sérstaklega.

Hins vegar erum við núna að nýta hluta af starfi Sjávarútvegsskólans varðandi nýtingu og nýsköpun í sjávarútvegi, til að mynda þegar kemur að meðferð afla og virðisaukningu í virðiskeðjunni. Þannig er t.d. verið að skoða hvernig best sé að auka geymsluþol afurða og bæta aðferðir við reykingu og þurrkun á fiski, sérstaklega í Vestur-Afríku.

En stóra málið er þetta: Ég fagna því að hv. þingmaður komi með hugmyndir og spurningar sem þessar því að eins og hv. þingmaður nefndi (Forseti hringir.) eigum við að ræða þessi mál, sérstaklega þróunarsamvinnuna. Ég mun láta skoða þessi mál sérstaklega.