samvinnufélög o.fl.
Herra forseti. Það hefur rækilega komið fram að skoðanir eru skiptar um hvernig við eigum að fylgja eftir þessu lagaákvæði um jöfn hlutföll kynja í stjórnum. Þetta var til umræðu í nefndinni í haust og við skrifuðum á nefndarálitið, hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins, með fyrirvara. Við nefndum það reyndar við meðferð málsins að við þyrftum að sjá hvernig mál hefðu þróast, hve stórt vandamál væri eftir. En eftir situr að við erum líka mjög fylgjandi því að þessi lög séu látin ganga eftir og að þeim sé framfylgt. Er refsivöndurinn endilega besta leiðin til þess eða hvernig tökum við utan um það? Við þurfum fyrst að sjá hve vandamálið er stórt, því að við skulum líka muna að mörg fyrirtæki og félög í þessu landi hafa lagt mikið á sig til að láta þessi markmið laganna ganga eftir og við megum ekki heldur gleyma þeim fyrirtækjum og félögum sem hafa viljað standa með þessari löggjöf.