sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Ég vildi bregðast aðeins við ummælum hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur um að ég hafi haldið því fram að tafirnar hafi verið hérna á Alþingi, vegna Alþingis eða nefndarvinnunnar. Ég átti við að málið væri í eðli sínu tafið með því að ekki hafi verið notaðir þeir þættir sem Páll Hreinsson tiltók í álitsgerðinni, að ekki hafi verið skrifað frumvarp beint upp úr þeim þáttum, það hafi valdið töfum að flækja málið með ákvæðum eins og um útgöngubann og skyldubólusetningu á landamærunum sem gera málið umdeildara og flóknara (Forseti hringir.) og ég átti við tafir hjá meiri hlutanum eða hjá ríkisstjórnarflokkunum. Það var heldur ekki sett í forgang fyrir áramót að klára þetta. Gagnrýni mín snýr að því en ekki Alþingi sem slíku.