þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Eins og virðulegur forseti og hv. 2. þm. Norðaust., Steingrímur J. Sigfússon, fór yfir áðan er frumvarpið fyrst og fremst tæknilegs eðlis og tekur ekki á stórum pólitískum álitamálum um það hvernig þingsköp eigi að virka og þingið sjálft. Það er í sjálfu sér forsenda þess að okkur takist að ljúka þessu á þessum tíma, en ég tek undir það með virðulegum forseta og hv. þingmanni að ég vona að okkur takist að komast eitthvað áleiðis í því að halda samtalinu áfram um það hvernig við þurfum og viljum breyta þingsköpum. Ég er á þessu máli, er meðal meðflutningsmanna á því. Ástæðan er sú að ég tel málið vera reiðubúið til frekari umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég býst fastlega við álitamálum þaðan og einhverjum breytingartillögum og það er bara hið eðlilega ferli mála hér á hinu háa Alþingi og gildir vitaskuld um þingsköp eins og önnur lög.
Ég kom hingað upp til að benda áheyrendum á ákveðið tómarúm í samfélagsumræðunni þegar kemur að því hvernig Íslandi er stjórnað, á hvaða forsendum og hverjar grundvallarleikreglurnar séu í pólitíkinni. Það er nefnilega tvennt þar sem skiptir máli, annað sem mikið hefur verið rætt um í samfélaginu, hitt sem hefur næstum því ekkert verið rætt um. Hið fyrra er stjórnarskrá þar sem grunnurinn er lagður að því hvernig hlutirnir eru; einfaldir hlutir eins og það að Alþingi sé til staðar og sé löggjafarvaldið, þvílíkur grunnur. Umræðan er hávær um mikilvægar breytingar á stjórnarskrá, vitaskuld til samræmis við frumvarp stjórnlagaráðs, samanber þjóðaratkvæðagreiðsluna árið 2012. Hið síðara, sem næstum engin umræða er um í samfélaginu, eru þingsköp Alþingis og skyldi engan undra. Þau eru frekar þurr aflestrar og heldur leiðinleg á dægurmáli og engin ástæða er til að hafa þau öðruvísi. Þau eru sett til þess að starfið hér inni sé samkvæmt skýrum reglum þannig að við þurfum ekki að vera að karpa um reglurnar þótt við körpum vitaskuld um það hvernig þeim er beitt og eðlilega, og sömuleiðis auðvitað niðurstöðuna sem kemur út úr ferlunum sem þar eru skilgreind.
Það vill svo til að í þingskapalögum er að finna ýmislegt sem ég vil meina að hafi úrslitaáhrif á það hversu vel Alþingi tekst að þjóna skjólstæðingum sínum. Þingsköpin virka eins og þau snúist um Alþingi, séu eitthvað sem bara þingmenn þurfi að pæla í og því vil ég mótmæla. Þingsköpin snúast um það hvernig Alþingi vinnur fyrir skjólstæðinga sína í samfélaginu. Þar eru hlutir sem eru kannski skipulagslegs eðlis sem fólk brennur ekki fyrir og mætir ekki á mótmælafundi til að berjast fyrir, skrifar ekki langa ástríðufulla pistla með rómantískri hugsjón og fallegri framtíðarsýn, heldur miklu frekar eitthvað eins og það hvort fundir séu opnir eða lokaðir eða hvernig frágangur umsagna skuli vera, það er nú reyndar betur skilgreint í reglum forsætisnefndar ef út í það er farið, og því um líkt. En í þingsköpum eru einnig ákvæði um það t.d. hvernig þingmenn megi tala, hversu lengi þeir eigi að tala og hvaða rétt þeir hafi til að taka hér til máls, hvernig atkvæðagreiðslum er hagað og fleira í þeim dúr. Það hefur veruleg áhrif á það hvernig Alþingi tekst að starfa fyrir skjólstæðinga sína.
Eitt af því sem ég tel að ekki sé hægt að kenna neinum sitjandi þingmönnum um í sjálfu sér en er, held ég, orðið frekar frægt, er að Alþingi er mun óskipulagðra en fólk gerir ráð fyrir. Þetta er oft það sem kemur nýjum þingmönnum hvað mest á óvart, þ.e. hve erfitt er sjá fram í tímann hvað er einfaldlega á dagskrá. Nú er mér í mun að gera mjög skýran greinarmun á tvennu, annars vegar þingstörfum sem þingmenn sjálfir standa að og hins vegar störfum starfsfólks Alþingis. Ég hef aldrei kynnst annarri eins fagmennsku og þeirri sem er að finna á meðal starfsfólks Alþingis, bara svo að ég segi það. Að því sögðu þykir mér ekki við hæfi að ræða það mikið hér í pontu en ég læt þar við sitja um þann þátt, en ég vil halda því til haga. Þegar kemur að því hvernig við þingmenn störfum, hvaða mál við setjum á dagskrá, hvernig við ræðum þau, hvernig við vílum og dílum um það hvað fari á dagskrá, hvað fari í nefnd, hvernig mál fari úr nefnd o.s.frv., þá er skipulagsleysið á ótrúlegu stigi. Ég held að allir nýir þingmenn verði hissa þegar þeir koma hingað inn. Ég grínast stundum með það við vini mína á sunnudegi og spyr: Veistu hvað við erum að fara að ræða á Alþingi á miðvikudaginn? Vinur minn segir: Nei, hvað? Ég svara: Ekki ég heldur. Ég veit kannski að það eru stjórnarmál, einhver stjórnarmál. Þá get ég svo sem farið og garfað eitthvað í einhverjum listum og reynt að átta mig á því hvort einhver ráðherra hafi viljað hafa eitthvað á dagskrá, hvort hann sé við eða hvað. Reyndin er sú að ég veit það ekki, virðulegi forseti, og enginn veit það nema kannski einn og einn starfsmaður hér innan húss og síðan mögulega forseti sjálfur. En það er ekkert endilega komið í ljós á sunnudegi hvað verður á dagskrá miðvikudags, bara svo að dæmi sé tekið.
Eins og ég sagði áðan vil ég ekki kenna neinum sitjandi þingmönnum um það, ekki beint alla vega. Ég hygg hins vegar að þetta ástand sé afleiðing af því að í áranna rás hafi hagsmunirnir sem hér takast á innan húss haft mikið að segja um það hver þróunin verður, hvernig hefðirnar reynast, hverjar skipta máli og hverjar skipta ekki máli. Það er óhjákvæmilegt. En ég held að það breyti engu hver sé við völd hvað þetta varðar. Þetta held ég að sé bara eðli stofnunarinnar. Þetta er átakastaður, það er hérna sem við komum saman til þess að útkljá ágreining. Við komum ekki hingað saman til að vinna saman. Við erum ekki kosin á þing til þess að róa öll í sömu átt. Þvert á móti, virðulegi forseti, því að við búum í samfélagi þar sem fólk rær ekki í sömu átt. Þá staðreynd kunnum við að útkljá með tveimur aðferðum, ein er stríð og hin er lýðræði. Við kjósum lýðræðið og það er það hlutverk sem Alþingi sinnir. Fólk á ekkert að vera hissa á því að við róum ekki í sömu átt og á ekkert að vera hissa hvað þá móðgað yfir því að hefðirnar og reglurnar þróist með hliðsjón af þeim hagsmunum sem hér takast á, sem m.a. eru stærstu hagsmunirnir sem finnast í íslensku samfélagi, efnahagslegir sem aðrir.
Þá er það spurning hvernig við myndum vilja hafa Alþingi þannig að okkur takist sem best að þjóna skjólstæðingum okkar að gefnum þeim ágreiningi sem ég nefndi og er óhjákvæmilegur hluti af lýðræðinu. Þar eru nokkrir hlutir sem ber reglulega á góma. Það er t.d. fjölskylduvænt þing, eitthvað sem virðist ekki koma almenningi neitt við en ég leyfi mér að taka dæmi um það hvernig það kemur almenningi við að Alþingi sé fjölskylduvænn vinnustaður fyrir þingmenn. Það er vegna þess að alþingismenn koma úr alþýðunni, sumir eru ríkir, aðrir ekki, sumir eru úr þessum geiranum, aðrir úr öðrum, en við erum fólk sem á vini, sem á fjölskyldu, sem á börn, sem á foreldra, er með einhvers konar starfsferil, áhugamál og því um líkt. Ég veit að það er öllum slétt sama þótt þingmenn þurfi að gefa upp á bátinn hluta af sínu persónufrelsi, einkalífi og tíma til að sinna þingstarfinu vel, og það er gott og blessað, ég er ekki að kalla eftir samúð. En ég vil, þegar ég hitti manneskju úti í bæ, sem mér finnst hafa frábærar skoðanir, hafa alla burði til að vera frábær þingmaður, geta sagt við þá manneskju að hún geti það. Það eru bara skuggalega margar aðstæður sem eru þannig að fólk sem gæti orðið frábærir þingmenn, og ég myndi vilja sjá í framboði og myndi vilja geta kosið, getur það ekki vegna þess að það á barn eða vegna þess að það þarf að sjá um einhvern nákominn eða eitthvað því um líkt.
Sú krafa sem er gerð á þingmenn gagnvart fjölskyldulífi og einkalífi er meira eða minna sú að þeir geti tímabundið gefið mjög stóran hluta af því upp á bátinn, alla vega ef þeir ætla að standa sig vel. Sú krafa er um of, kannski ekki fyrir þingmennina sem sitja hér en fyrir fólkið úti á landi og í samfélaginu sem myndi bjóða sig fram ef þetta væri ekki þannig. Ég átta mig fullkomlega á því að eðli starfsins er þannig að það verður aldrei „fjölskylduvænt“, en það er alltaf hægt að gera það fjölskylduvænna, það er hægt að gera það aðgengilegra fyrir almenning. Það er verið að gera það t.d. með styttingu vinnuvikunnar sem Alþingi tekur þátt í og er spennandi að sjá hvernig það fer. En ég nefni þetta dæmi vegna þess að þó að umræðuefnið virðist sjálfhverft og snúast einhvern veginn um okkur hér á þingi snýst það miklu frekar um þjóðina sem þessi stofnun sinnir og þjónar og fólkið sem gæti verið hér inni en er það ekki vegna aðstæðna sem þingsköp gera því á endanum ókleift að vinna eftir.
Á þeim litla tíma sem ég á hér eftir í þessari ræðu þarf ég aðeins að ræða það sem lengi hefur verið bitbein á Alþingi og eðlilega, en það er ræðutíminn. Við höfum öll heyrt fúkyrðið málþóf, sem er í reynd fúkyrði yfir langar umræður sem einhver nennir ekki að hlusta á og finnst vera óþarfi. Samkvæmt þeirri skilgreiningu er öll orðræða sumra þingflokka málþóf að mati annarra og allt í góðu með það. Ástæðuna fyrir því að málþófi er beitt og hefur verið beitt í gegnum tíðina má rekja til þess að þegar við förum í kosningar og fáum niðurstöður þar sem kannski tveir eða þrír flokkar fá segjum 60% atkvæða þá fá þeir 100% valdsins. Þegar kominn er meiri hluti hér á Alþingi og ríkisstjórn í skugga þess meiri hluta verður til þetta valdaójafnvægi og minni hlutinn, sem jafnvel hefur umboð 40% kjósenda eða svo, gefum okkur það, er meira eða minna valdalaus, þ.e. ef ekki er beitt einhverri tækni og brellum eins og málþófi eða vísvitandi töfum eftir öðrum leiðum. Leiðin til að takast á við þetta er að valdefla minni hlutann, gefa honum meira af valdinu. Í Danmörku til að mynda getur þriðjungur þings knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um mál sem danska þingið hefur samþykkt. Þessu hefur einu sinni verið beitt, voru þá þrjú mál minnir mig, og síðan þá hefur því aldrei verið beitt. Munurinn er sá að bara það að þetta tæki sé til staðar getur breytt því hvernig meiri hlutinn vinnur gagnvart minni hlutanum á hátt sem þjónar íslenskum almenningi. Það snýst ekki um þingmennina sjálfa og það snýst ekki um það hvernig við viljum hafa hlutina heldur snýst það um hvernig þingtæknin sjálf virkar til hagsbóta fyrir almenning.
Það er heilmargt fleira sem mig langar til að ræða í sambandi við þingsköp eins og varð kannski skýrt mjög snemma í þessari ræðu. En ég kom aðallega hingað upp til að vekja athygli á því að það er ekki bara stjórnarskrá, þar sem við finnum grundvallarreglurnar, sem skilgreinir það hvernig okkur tekst til að þjóna hagsmunum skjólstæðinga okkar heldur einnig þingskapalög. Núna erum við í tæknilegum lagfæringum og í breytingum til uppfærslu við hefðir og allt það, eins og virðulegur forseti fór ágætlega yfir áðan. En við megum ekki gleyma næsta skrefi. Ég treysti því að virðulegur forseti gleymi því alls ekki en það er að takast á um það hvernig við breytum þingsköpum þannig að vinnubrögðin hérna breytist. Það er ekki sjálfkrafa einhver uppreisn eða að þurrka eitthvað algjörlega út af borðinu. Það eru svo margar breytingar til bóta sem við gætum farið í en oft er því miður ekki áhugi á því, annaðhvort vegna þess að fólki finnst hlutirnir bara fínir eins og þeir eru eða vegna þess að það áttar sig ekki á að þetta skiptir máli í því samhengi sem ég hef nefnt.
Ég ætla að láta þetta duga, virðulegi forseti. Ég hef orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá andsvar frá virðulegum forseta, og hlakka til þeirra samskipta. (Gripið fram í.) Mér þykir þó gott að okkur hafi tekist að lenda þessu máli þar sem það er núna. Við sjáum til hvernig það kemur úr nefnd og til lokaafgreiðslu. Markmiðið með þessari ræðu var að vekja athygli á mikilvægi þingskapa í samhengi við hagsmuni borgaranna.