þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið. Forseti hittir naglann algerlega á höfuðið þegar hann nefnir að til að auka þennan fyrirsjáanleika þurfi að takast á við það hvernig hægt sé að skipuleggja ræðutíma. Það þýðir einhverja samninga eða einhverjar skýrar reglur um það. Það er stórt verkefni. Það sem ég vildi hins vegar benda á er að til að takast á við það þarf að leysa annað vandamál sem er valdaójafnvægið sem kemur út úr stærðfræðinni á bak við það hvernig valdið raðast niður. Sem dæmi er 1. þingmaður hvers einasta kjördæmis úr Sjálfstæðisflokknum. Þótt Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur sé ekki með 100% atkvæða þá er hann samt alltaf efstur þegar við „dontum“, eins og sagt er, niður einhverja aðra lista. Þarna veldur stærðfræðin því að til verður valdaósamræmi eða valdaójafnvægi sem var ekki hugsunin með forgangskosningu. Þetta endurspeglast líka í því að 60% meiri hluti á þingi er með 100% valdsins. Það er alltaf sami meiri hlutinn sem tekur ákvarðanirnar. Berum það saman við ímyndað dæmi þar sem 60% þingsins myndu taka 60% ákvarðana en hin 40% ákvarðananna væru í höndum 40% minni hluta. Þetta er ímyndað dæmi og fráleitt verkfræðilega en er ætlað að varpa ljósi á þetta ójafnvægi í völdum er hérna innan húss. Það leiðir af sér að minni hlutinn hefur einungis beisk og vond vopn eins og málþóf þegar verulega liggur á. Það er vopnið sem minni hlutanum almennt er svo annt um, reyndar þessum minna en öðrum eftir því sem ég fæ best séð, vegna þess að það er ekkert annað sem kemur í staðinn. Til að leysa vandann við skipulagið þurfum við að leysa ræðutímann. Til að leysa ræðutímann þurfum við að takast á við þetta valdaójafnvægi sem myndast. Þetta er svolítið það sem ég vil benda á í þessu samhengi.
Verkefnið er risavaxið (Forseti hringir.) og margþætt og ég geri ekki lítið úr vinnu virðulegs forseta eða annarra sem hafa staðið að þó þeim jákvæðu breytingum sem hafa verið gerðar. (Forseti hringir.)En mér finnst við þurfa að halda þessu til haga til að geta tekist meira og betur á við vandann í framtíðinni.