þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Herra forseti. Ég þakka enn og aftur fyrir andsvarið. Ég ætlaði einmitt að nefna það að vatnalögin væru frá 1923 og nr. 20, ef ég man rétt, ég er ekki alveg viss. En það var mjög vel til fundið hjá hv. þingmanni að nefna þetta ákvæði úr vatnalögunum. Þó að það sé langt um liðið frá þeim held ég að lagatexti í dag sé óþarflega mikið þvældur og óþarflega langur. Frumvörp eru mjög viðamikil og flestu fólki, kannski ekki þingmönnum og lögfræðingum, en svona venjulegu fólki, mjög erfið til lestrar til að kynna sér málin. Ég held því að þetta sé verðugt umhugsunarefni og umræðuefni. Ég tek undir þá áskorun að þetta er kannski umræðuefni sem við ættum að taka fyrir á svokölluðum lagadegi, alls ekki í tengslum við þetta frumvarp, enda tók ég fram að þetta væri kannski ekki skýrt dæmi, en það eru til dæmi úr þessum texta þar sem menn eru að reyna að setja fötur undir alla dropa sem þeir koma auga á, sem ég tel vera að mörgu leyti bara óþarfa.
Þjóðverjar reyndu á sínum tíma að útbúa lög sem tækju á öllum hugsanlegum tilvikum í mannlegu samfélagi og það voru lög sem voru mikil að vöxtum, eðlilega. Ég held við ættum að hafa það í huga að mannlegt samfélag verður ekki markað eða rammað inn í lagatexta að öllu leyti.