þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Virðulegur forseti. Það er ýmislegt í þessari ræðu sem ég get verið sammála en ég verð hins vegar að koma hingað upp, vegna þess að hv. þingmaður er meðlimur Sjálfstæðisflokksins, og benda á að leiðin til þess að ramma inn ræðutímann er sú að koma til móts við valdaleysi minni hlutans sem annars er til staðar. Það er rótin, að mér vitandi er óumdeilt að það sé rótin. Ég hef aldrei heyrt neina aðra skýringu á því en nákvæmlega þann þátt. Ég get staðið hér og grenjað mig hásan í pontu sem Pírati í minni hluta 2013–2016 eða frá 2017 til dagsins í dag, en ég get ekki breytt þessu vegna þess að ég er ekki í meiri hluta. Ef breyta á því hvernig minni hlutinn getur nýtt einhver tæki betur, fágaðri og málefnalegri tæki en málþóf til að hafa áhrif á gang mála, verður meiri hlutinn að gera það. Það gerir enginn annar. Ég verð að segja að eins málefnaleg og í meginatriðum rétt ræða hv. þingmanns er, ég get tekið undir hana að langmestu ef ekki öllu leyti, þá hefur maður í stjórnarandstöðunni alltaf bara þetta eina tæki til þess að á mann sé hlustað. Og þá er röddin alltaf úr meiri hlutanum sú að það þurfi að losna við þetta tæki. Frumkvæðið verður að koma frá meiri hlutanum um að valdefla minni hlutann. Það er inngangurinn að því að koma einhverjum taumum á umræðuna, ekki bara á þessu kjörtímabili, óvenjulítið á þessu kjörtímabili reyndar, verð ég að segja.
Ég hef engu að mótmæla í sjálfu sér í því sem hv. þingmaður sagði og hef einskis í sjálfu sér að spyrja, en óska þess frá dýpstu hjartans rótum að hv. þingmaður komi þessum skilaboðum til samflokksþingmanna sinna, þannig að hægt sé að stíga fyrstu skrefin í að gera þetta að veruleika. Þetta er alveg hægt en það þarf að vera alvara á bak við það og byrja þarf á þessum stað.