þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið. Ég held einmitt að lausnin sé sú að rjúfa þennan vítahring því að hann er slæmur. Ef fólk telur sig þurfa að koma hingað upp oftar og tala lengur til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri þá held ég að það sé misskilningur, ég held að sjónarmiðin kæmust jafnvel betur á framfæri í styttri og snarpari ræðum og að þá væri almennari áhugi á þingstörfunum og því sem á sér stað hérna í þessari málstofu okkar. Sumum finnst ég voðalega hjákátleg þegar ég tala um að þetta séu leiðinlegar ræður og ég vilji bara hafa skemmtilegt á Alþingi eins og þetta sé einhver skemmtiklúbbur.
Virðulegur forseti. Ég er auðvitað ekki að tala um það, en það er ekki þannig að það þurfi samt sem áður að vera leiðinlegt hjá okkur í vinnunni þó að við tökumst á og höfum mismunandi skoðanir og ólík sjónarmið. Ég lít þannig á að við séum einmitt kosin til þess að koma þeim á framfæri. Ég held að við séum svolítið að tala um það sem nær kannski lengra en lögin, þingsköpin okkar. Þetta er menningin okkar. Hvernig viljum við eiga það samtal, við sem erum kjörin af almenningi? Hvernig finnst okkur eðlilegt að eiga það? Það er óeðlilegt að bara fáir aðilar standi alltaf hér og tali alltaf lengst en aðrir séu varla þátttakendur í samtalinu. Það er kannski það sem ég er að reyna að segja hérna, ég held að við gætum náð einhverjum árangri ef við myndum rjúfa þennan vítahring.