151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

468. mál
[17:50]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Mér finnst þetta skemmtilegar umræður sem eiga sér stað núna. Ég sat í þeirri þingskapanefnd sem fjallaði um það mál sem hér hefur verið lagt fram og við erum að fjalla um. Sannarlega eru þetta fyrst og fremst svona fínpússningar, en líka ný atriði og eins og kom fram hjá framsögumanni málsins er verið að skerpa á ýmsum hlutum. Og svo það nýja kannski sem felst í því að efla skrifstofuna með afgerandi hætti, sem á auðvitað að gera.

Það eru nokkur atriði sem mér finnst skipta máli og hafa sýnt okkur í ástandinu að er nauðsynlegt að geta gripið til, margra hluta vegna, m.a. það sem kemur fram í 9. gr. þar sem talað er um forföll og notkun fjarfundarheimildar, t.d. ef fólk er veðurteppt á heimaslóðum, sérstaklega landsbyggðarfólkið. Í beinu framhaldi af því, eins og hv. þingmaður sem talaði á undan mér nefndi, eru breytingar á fyrirkomulagi þinghaldsins þessa tvo mánuði sem við erum að prufa núna, samkvæmt starfsáætlun. Það eru nefndadagar á mánudögum og eru fjarfundir og fólk getur þá kannski farið seinna að heiman en verið hefur, þeir sem eiga um langan veg að fara. Svo eru líka praktískar breytingar sem mér finnst skipta máli af því að hér var talað um viðveru og annað slíkt til langs tíma. Í 20. gr. er verið að heimila fækkun á atkvæðagreiðslum, að það sé hægt að sameina þær að einhverju leyti. Það er mikilvægt því að þær eru oft ansi flóknar og langar og stundum hægt að stytta þær verulega.

Í 24. gr. er verið að skerpa dálítið vel á afhendingu gagna og úrvinnslu þeirra til þess að þingið geti haft eftirlit með störfum framkvæmdarvaldsins og mér finnst þar betur tekið utan um það mál. Eins er það með skýrslugjöf sem við höfum oft talað um. Hér eru lagðar inn beiðnir um skýrslur og oft kemur dagskráin inn seint að kvöldi þannig að þingmenn hafa ekki áttað sig á að það sé komin fram skýrsla sem beri að taka fyrir og greiða atkvæði um hvort eigi að leyfa strax á fyrsta fundi og hafa jafnvel ekki haft tök á að kynna sér hana. Hér er verið að gefa þingmönnum og þingflokkum meira svigrúm og ég held að það sé af hinu góða að geta ígrundað dálítið það sem verið er að fara fram á. Þá er jafnvel hægt að óska eftir breytingum ef fólk vill gera þær eða bara að taka afstöðu til þess hvort það er með eða á móti. Hefðin hefur verið sú að allar skýrslur fara í gegn nánast umræðulaust. Ég man eftir einu tilviki á þessu kjörtímabili, kannski tveimur, þegar varð smáuppistand sem varð til þess að skýrslu var frestað, þ.e. að taka hana á dagskrá. Það er ágætt að gefa andrými til þess. Og þótt okkur finnist við þurfa oft að bíða dálítið lengi eftir að fá svör úr ráðuneytum þá held ég, eins og segir í 28. gr., að það sé ágætt að reyna að færa þessa hluti í þann farveg sem þeir eru og hafa verið praktíseraðir í dálítið langan tíma.

Fíllinn í stofunni er sá sem hér hefur verið ræddur, sem er ræðutíminn. Við þingmenn virðumst ekki geta náð utan um það, hvorki núna né áður. Það er dálítið síðan að ræðutímanum var breytt og ég er ekki endilega viss um að sú breyting hafi verið af hinu góða, a.m.k. miðað við hvernig þetta hefur breyst hér í þinginu. Ég held að breytingin hafi ekki verið hugsuð með þeim hætti sem hún hefur verið nýtt. Hér hefur ýmislegt verið nefnt, langar ræður og frekar leiðinlegar. Ég er í þeim hópi örugglega, hef einhvern tímann talað hérna manna mest, og örugglega oft mjög leiðinlegt. Okkur hættir dálítið til þess og ég er þar jafn sek og margur annar, að lesa nefndarálit upp í staðinn fyrir að vísa í þau og vera með stuttar og snarpar skýringar á því sem málið snýst um og vísa svo bara til þess að skjalið sé til á vef þingsins og fólk geti kynnt sér það betur. Þetta er eitt af því sem væri sannarlega hægt að gera til þess að stytta ræðutíma. En svo er hefðin auðvitað sú, eins og hér hefur verið sagt, að safna ræðutíma, þessi barátta um drottningu og kóng á hverju ári, hverjir komast á pallinn. Þetta er eitt af því sem er öðruvísi hjá okkur en er kannski í þeim norrænu þingum sem við höfum miðað okkur við. Þar eru minnihlutastjórnir sem Íslendingum hefur ekki, ég veit ekki hvort ég á að segja auðnast að prófa eða vera með, við höfum alla vega ekki tekist á við það, svo einhverju skipti, held ég. Það er líka partur af því hvernig vinnuumhverfið er.

Ég man að það kom fram hjá forseta þegar við vorum að ræða þessi mál í nefndinni og menn veltu því upp hvað væri hægt að gera til að breyta umfjöllun um tiltekin mál í þinginu, að nefndir gætu m.a. áætlað sameiginlega hvað hvert mál ætti að þurfa langan tíma í þinginu. Það tíðkast annars staðar. Það er leið sem er verðugt að velta fyrir sér. Það er erfitt að gera samninga í upphafi hvers þings þegar það liggur ekki endilega fyrir nákvæmlega hvenær málin koma öll til þingsins. Það er gefinn upp áætlaður tími sem Stjórnarráðið leggur til við upphaf hvers þings, gert er ráð fyrir að málin eigi að koma hægt og sígandi fram á hverju misseri. Það gengur ekki alltaf eftir og þá getur verið erfitt að vera búinn að semja fyrir fram, jafnvel um málaskrána eins og hún liggur fyrir eða eitthvað slíkt. Það gengur auðvitað ekki eftir eðli máls samkvæmt.

En ég held að við þurfum að takast á við þetta og við þurfum líka að takast á við það hvernig við viljum breyta ræðutímanum. Ég tel að við eigum að reyna það og taki gildi á nýju kjörtímabili. Fólk veit ekki hvort það er í meiri hluta eða minni hluta eftir kosningar og þess vegna held ég að mikilvægt sé að taka slíkt samtal, bara svona eins og maður segir, korter í kosningar þannig að enginn tali beinlínis sem minnihlutafulltrúi eða meirihlutafulltrúi. Við höfum mörg hver a.m.k. prufað hvort tveggja. Auðvitað þarf stjórnarandstaða hvers tíma alltaf að hafa einhverja útgönguleið til að stöðva mál. Ég held að það liggi alveg á hreinu. En málþóf er ekki besti bragurinn og þess vegna þarf að finna einhverja aðra leið út úr því.

Virðulegi forseti. Ég ætlaði nefnilega ekki að vera með langa og leiðinlega ræðu en mig langaði að koma aðeins inn á þetta af því að þetta er sannarlega áskorun. Bara sú áskorun að koma saman þessari prufu um tveggja mánaða breytingu á fyrirkomulagi þinghaldsins var erfið fæðing. Okkur gengur ekki mjög vel að ná endilega saman um breytingar af því að við höfum ólíkar nálganir eins og gefur að skilja. Þess vegna vona ég svo sannarlega að þetta verði upplegg að því sem koma skal í þingstörfunum og að þau verði sveigjanlegri. Mér finnst þau vera sveigjanlegri svona. Svo er líka það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir benti á, að það verði kannski líka fleiri sem komi og taki þátt í umræðunni. Það eru allt of fáir þingmenn sem taka þátt í umræðum, í þeim málum sem eru á dagskrá. Þá er ég ekki að tala um störf þingsins eða eitthvað slíkt heldur þegar við erum einmitt að fjalla um eitthvað svona.

(Forseti (BN): Það hefur fjölgað nokkuð á mælendaskránni og sýnist stefna í málþóf.)