151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

468. mál
[18:46]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Auðvitað er upplifun okkar mismunandi í þessu starfi eins og öllum öðrum. Aðstæður fólks eru mjög mismunandi. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það er munur á því að búa einn og eiga engin börn eða eiga 20 börn. En það er eitthvað sem við vitum fyrir fram. Auðvitað eru minni flokkar og allt það starf er erfiðara. Þess vegna hef ég lagt svo mikla áherslu á að ekki eigi að vera mikið með smáflokka sem ég held að séu til vandræða fyrir lýðræðið. Kjósendur eru að vísu ekki sammála mér í þessu. Smáflokkastarfið verður auðvitað miklu erfiðara en mér sýnist að staða smáflokkanna hafi verið bætt mjög. Þeir eru orðnir með fleiri aðstoðarmenn en þingmenn þeirra þannig að það hefur batnað aðeins.

Vissulega ætla ég ekki að gera lítið úr því að við getum upplifað hluti með ýmsum hætti. Mér finnst það bara orðin einhver lenska að tala þingið niður. Menn tala um að átökin hér séu bara eins og andlegt ofbeldi. Ég held að menn séu alveg komnir fram úr sér í allri þessari umræðu. Það getur vel verið að menn upplifi þetta sem algert ofbeldi en það er auðvitað einhver svona nútímaumræða. Menn tala svo mikið um nútímann. Menn halda alltaf að ef þeim dettur einhver vitleysa í hug sé það nútíminn. Venjur og hefðir eru góðar og ég er alveg viss um að við forseti þingsins erum sammála um það. En ég geri ekkert lítið úr því að menn geti upplifað hluti og við erum alltaf að reyna að bregðast líka við því. Við erum alltaf að reyna að bæta stöðuna. Ég bið bara þingmenn almennt: Ekki vera fremstir í flokki að tala niður löggjafarþingið. Jákvæð gagnrýni, allt í lagi.