151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

468. mál
[18:48]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Brynjari Níelssyni fyrir þetta svar. Í grunninn erum við sammála um að Alþingi er frábær vinnustaður. Ég hef persónulega gefið það út á opinberum vettvangi. Ég held að ég hafi orðað það svo að þetta væri skemmtilegasti vinnustaður í heimi. Ég er alveg sammála því að ekki á að tala niður löggjafarþing Íslands. Ég verð samt að benda á eitt. Hv. þingmaður talar um að Alþingi eigi eðli málsins samkvæmt að vera átakastaður. Ég er alveg sammála því líka. Málefnaleg átök eiga að eiga sér stað í nafla lýðræðisins eða á lýðræðisvettvanginum en þetta snýst kannski fyrst og fremst um að það séu málefnaleg átök, pólitísk átök en ekki bolabrögð og slíkt. Og það er kannski það sem fólk er að tala um þegar það, eins og hv. þingmaður upplifir það, talar Alþingi niður. Það er verið að tala niður ákveðna hegðun sem á eiginlega ekkert erindi á neinum vinnustað. Þá vil ég benda hv. þingmanni á að ef við erum sammála um að það megi vera átök í pólitík er þá ekki líka í lagi að tekist sé á um þau atriði sem við erum að ræða hér? Þetta er fín og þörf umræða og gagnleg, held ég, fyrir okkur öll sem hér störfum. Alþingi er skemmtilegur vinnustaður en vissulega má alltaf breyta og bæta hlutina.