151. löggjafarþing — 51. fundur,  2. feb. 2021.

breyting á útlendingalögum til að hemja útgjöld og auka skilvirkni í málsmeðferð.

389. mál
[20:08]
Horfa

Flm. (Ólafur Ísleifsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekki að ræða um hvernig menn beita sér í skrifstofulegu tilliti. Ég átta mig bara alls ekki á því hvernig hv. þingmaður getur fullyrt það að annars vegar þessir 38 og hins vegar þessi 331 myndu fá efnismeðferð þegar við erum annars vegar að tala um fólk sem kemur frá öruggum ríkjum og hins vegar fólk sem hefur þegar fengið hæli í öðru landi. Ég átta mig bara alls ekki á því hvernig hv. þingmaður getur haldið því fram. Miðað við orð hv. þingmanns er ég ekki enn þá búinn að átta mig á því hvort það sé einhver sérstakur skoðanaágreiningur okkar á milli hér. Ég get ekki farið út í einhverja starfshætti og einhverja skrifstofumennsku við afgreiðslu á umsóknum. Aðalatriðið er þetta: Við erum að fylgja stefnu enn sem Norðurlöndin hafa horfið frá og sem danski forsætisráðherrann lýsti í ræðu í danska þjóðþinginu, og vafalaust við fleiri tilefni, að hefði verið mistök, herra forseti. Mistök. Við getum ekki litið fram hjá reynslu nágrannaþjóðanna. Við getum ekki haldið áfram að senda þau skilaboð að það hagkvæmasta sem nokkur maður geti tekið sér fyrir hendur, sem er á ferð um heiminn í þessum erindum, sé að snúa sér hingað til Íslands. Það getur bara ekki verið. Við erum með velferðarkerfi sem við höfum metnað til að verja, a.m.k. sum hver, og við getum það ekki ef hér eru galopin landamæri. Það er bara ekki hægt. Sömu krónunni verður ekki eytt nema einu sinni.