breyting á útlendingalögum til að hemja útgjöld og auka skilvirkni í málsmeðferð.
Virðulegi forseti. Það er dæmigert að ef maður er ósammála hv. þingmanni eða einhverju úr þessari átt þá sé maður að banna einhverjar skoðanir eða einhvern veginn að mótmæla tjáningarfrelsi fólks. Ég held að ég hafi sannað að það séu fáir dyggari stuðningsmenn tjáningarfrelsisins sitjandi á þingi en sá sem hér stendur og vísa bara í málalista Alþingis því til stuðnings og orðræðuna sem ég hef haldið hér uppi.
Virðulegi forseti. Þetta er þessi gamla lumma sem er alltaf notuð ef einhver svarar manni fullum hálsi, að þá sé viðkomandi einhvern veginn að banna manni að tjá sig. Það er bara þvæla. Þvæla þykir kannski stórt orð í heimi hv. þingmanns en það er þvæla þegar hv. þingmaður notar sjálfur orð, og ég er að vitna beint í ræðu hans, eins og „galopin landamæri“. Það er þvæla, virðulegi forseti. Það er ekki til kurteislegri leið til að segja það. „Opinn krani“ er annað sem hv. þingmaður segir og það er líka þvæla. Það er bara þvæla, bara bull. Hv. þingmanni getur þótt alveg ómögulegt að tala við manneskju sem kannski rekur ofan í hann slíkan málflutning, en það ætla ég að gera áfram svo að hv. þingmaður viti það. Honum er guðvelkomið að koma í andsvar við mig hvenær sem er mín vegna, það særir mig ekki neitt.
En til að ljúka á aðeins jákvæðari nótum: Hv. þingmaður sagði að við ættum að draga lærdóm og hlusta. Ég er sammála, virðulegi forseti. Það væri gott ef hv. þingmaður myndi hlusta á þá staðreynd að við erum ekki með galopin landamæri, það hefur enginn stungið upp á þeim hér. Það er staðreynd. Það er ekki opinn krani, hvorki fyrir fjármagn né fyrir fólk inn í landið. Það er staðreynd. Ég vona að hv. þingmaður dragi lærdóm af þessu og byrji að hlusta, en þá þarf líka að gera það.
Hv. þingmaður sagði mig vera að gera sér upp skoðanir og hatur og eitthvað svoleiðis. Virðulegur forseti. Ég sagði að hatur, útskúfun og þess háttar í samfélögum auki glæpatíðni. Það er það sem ég sagði hér áðan, talandi um að hlusta. Ég geri fastlega ráð fyrir því að við höfum tækifæri til þess að ræða þetta nánar hér í kvöld og ef ekki í kvöld þá seinna þannig að ég lýk máli mínu í ljósi tímans.