151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

störf þingsins.

[13:22]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Á morgun, 4. febrúar, er alþjóðadagur krabbameina. Ég vil því nota tækifærið til að minna á þingsályktun sem var samþykkt hér á Alþingi á síðasta ári, nánar tiltekið 30. júní. Hún fjallaði um ráðstafanir til að lágmarka kostnað vegna krabbameinsmeðferðar og vegna langvinnra og lífshættulegra sjúkdóma. Ráðherra var falið að skila skýrslu þar að lútandi eigi síðar en 1. mars nk. Það er nauðsynlegt að staðið verði við þessa ályktun; að greinast með krabbamein hefur áhrif á fjölmarga og við sjáum dæmi um það í átaki Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk með krabbamein, þessa dagana.

Ég vil líka nota tækifærið hér og vekja enn og aftur athygli á því að hækka á aldursviðmið kvenna í fyrstu brjóstaskimun úr 40 árum í 50. Ákvörðuninni var frestað og því vofir hún enn yfir. Rökin eru þau að það sé í lagi þar sem engin gögn styðji að rétt sé að miða við 40 ár. Eru þessi gögn til? Er til greining á því hversu margar konur greindust með skimun á aldursbilinu 40–49 ára, eða hversu margar greindust vegna einkenna? Á því er stór munur. Munum að á síðastliðnum árum hefur að meðaltali greinst 31 kona á aldrinum 40–50 ára á ári og það hlýtur að skipta máli. Konur vilja taka ábyrgð á eigin heilsu. Við eigum að auka aðgengi í stað þess að standa í veginum.