151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

störf þingsins.

[13:23]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Þegar samkeppnislög komu fyrst fram á sjónarsviðið í Bandaríkjunum árið 1890 var tilgangurinn að vernda neytendur gegn háu verði annars vegar og takmörkuðu framboði hins vegar. Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur sagt samkeppnislög og samkeppnislöggjöf jafn mikilvæg fyrir efnahagslegt frelsi og sjálf stjórnarskráin er fyrir vernd mannréttinda. Samkeppni er enda verkfæri til að stuðla að fjölbreyttara framboði og lægra vöruverði í þágu almennings. Nú um áramótin var tekin upp aðferð við úthlutun tollkvóta á erlendar landbúnaðarvörur sem felst í því að innflutningsheimildum er úthlutað til hæstbjóðanda. Innflytjendur þurfa að greiða útboðsgjald til að fá að flytja inn vörur án tolla.

Í máli framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda hefur komið fram að gjaldið hafi um nokkurt skeið farið lækkandi, en um áramótin var tekin upp ný aðferð, eða raunar eldri, við að ákvarða gjöldin og þá hafi það hækkað á ný. Þessi breyting mun auðvitað að líkindum leiða til verðhækkana á matvöru. Þarna er t.d. 65% hækkun á tollkvóta fyrir nautakjöt, 115% hækkun fyrir lífrænt alifuglakjöt og til að fá að flytja inn ákveðna tegund af skinku, parmaskinku eða serranóskinku, 29-faldast útboðsgjaldið. Ef tilgangurinn var sá að vernda íslenskan landbúnað, hefði þá ekki mátt gera það með þeim hætti að bændur sjálfir hefðu notið góðs af? Aðgerðir stjórnvalda núna byggjast nefnilega ekki á beinum stuðningi við rekstraraðila heldur eingöngu á því að skerða stöðu keppinauta.

Þetta er á skjön við aðrar stuðningsaðgerðir ríkisstjórnarinnar núna þar sem aðgerðirnar hafa einmitt verið fólgnar í beinum stuðningi. Íslensk matvælaframleiðsla verðskuldar vitaskuld stuðning og að búa við aðstæður og umgjörð til að blómstra, en stríð ríkisstjórnarinnar við serranóskinkuna er dálítið broslegt. Varnarmúr stjórnvalda á landamærunum er ógnarhár. Stafar almenningi mögulega einhver hætta af parmaskinku, sem við ekki þekkjum? Er þetta eitthvert öryggismál? Eða hvers vegna er ríkisstjórnin einhuga í því markmiði að draga úr samkeppni, hækka verð og fækka valmöguleikum almennings?