störf þingsins.
Herra forseti. Allt er breytingum undirorpið. Stundum eru það stórir hlutir sem varða ríka hagsmuni og stundum eru það smáir hlutir sem varða mann persónulega. Oft er ekkert samhengi á milli þessara breytinga en stundum er það mjög mikið. Öll viljum við borða hollt og gott til að halda góðri heilsu og halda línunum í skefjum. En það gengur nú svona og svona hjá okkur mörgum. En hitt færist í vöxt að fólk vill beita mataræði sínu til að hafa annars konar góð áhrif á aðra þætti. Gott dæmi um þetta eru þau sem gerast vegan og neyta þá engra dýraafurða í hvaða formi sem þær birtast.
Uppreisn, ungliðahreyfing Viðreisnar, skoraði á þingflokkinn að gerast vegan í viku. Þeirri áskorun tók ég og vikunni lauk á miðnætti síðastliðinn sunnudag. Ég tók þetta mjög alvarlega og fylgdi öllum reglum veganismans út í ystu æsar. Mér þótti þetta satt að segja ekki eins erfitt og ég bjóst við fyrir fram og hef þrifist ágætlega eins og sjá má. En þetta hefur vakið mig til umhugsunar um ýmsa hluti, svo sem hollustu, dýravelferð, en ekki síst hve gríðarleg áhrif við getum haft á umhverfismál með því að draga úr neyslu kjöts og að það muni hafa vaxandi áhrif á skipulag landbúnaðar hér á landi og erlendis. Án þess að hafa tekið nokkra ákvörðun um að gerast vegan til framtíðar hef ég ákveðið að halda áfram enn um sinn á þessari braut því að það gerir mér gott og umhverfinu lika.