151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill geta þess til gamans að sú rýmkun á ræðutíma sem tengist samkomulagi um breytta uppsetningu þingvikunnar og við störfum nú eftir, þ.e. að rýmka tímann fyrir störf þingsins þannig að allt að 20 þingmenn komist að, leiddi til þess að framboð og eftirspurn mættust 100% í einum punkti. 20 þingmenn óskuðu eftir að ræða störf þingsins og 20 þingmenn komust að. Hlýtur það að gleðja menn og alveg sérstaklega þá sem eru markaðslega sinnaðir.