veiting ríkisborgararéttar.
Herra forseti. Það er ástæða til að óska því fólki sem nú fær íslenskan ríkisborgararétt, ásamt fjölmörgum öðrum, til hamingju með það. Það hlýtur að vera ánægjuleg stund fyrir allt þetta fólk. En ég vil enn einu sinni sem oftar gera athugasemd við það fyrirkomulag sem er á þessum málum. Vilji menn að Alþingi afgreiði það hvort fólk fái ríkisborgararétt eða ekki þurfa að fylgja því einhverjar upplýsingar. Ef menn vilja hins vegar að þetta sé afgreitt annars staðar, eins og tillögur hafa komið fram um, og mér skilst að vinna hafi hafist við í dómsmálaráðuneytinu á sínum tíma, gera þeir það með þeim hætti. En það fer illa á því að blanda þessu saman án þess að þingið hafi upplýsingar um forsendur eða nokkrar aðrar upplýsingar um það sem það er að samþykkja og því mun ég ekki greiða atkvæði í málinu.