veiting ríkisborgararéttar.
Virðulegur forseti. Hafandi tekið þátt í þessari vinnu undirnefndar hv. allsherjar- og menntamálanefndar nokkuð oft vil ég taka fram að þetta er mjög vönduð vinna. Þótt hún lúti ekki lögum stjórnsýsluréttar er farið rækilega yfir allar umsóknir og það mikla magn upplýsinga sem liggur fyrir til að taka þær ákvarðanir sem teknar eru. Hins vegar vil ég að það sé alveg skýrt: Langflestir sem fá ríkisborgararétt á Íslandi gera það gegnum framkvæmdarvaldið eftir stjórnsýsluleiðinni. Langflestir fá þannig ríkisborgararétt eftir þeim leiðum sem við myndum telja venjubundnar. Hins vegar er ekkert skrýtið við það, og það er mjög algengt í ríkjunum í kringum okkur, að einhver aðili innan stjórnsýslunnar, hvort sem það er forsetinn eða löggjafarvaldið, hafi geðþóttavald til undantekningar á að veita ríkisborgararétt og ég tel ekkert athugavert við það. Nýlega voru gerðar breytingar á lögum um ríkisborgararétt þannig að veita þarf miklu færri undanþágur nú en áður og það er vissulega til bóta. Ég tek undir með hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni, það má vissulega áfram bæta þá löggjöf því að enn þarf þingið að grípa inn í og veita undanþágur.