151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

veiting ríkisborgararéttar.

487. mál
[13:56]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta ferli er mjög ógagnsætt. Það eru þrír þingmenn sem taka að sér að fara yfir umsóknir. Ég hef ekki hugmynd um hvað liggur á borðinu fyrir framan þá ágætu þingmenn. Ég veit að þeir gera sitt besta til að velja úr þessum hópi sem sækir um. Þetta ferli er stórgallað. Ég veit ekki hvernig ég get greitt atkvæði með einhverju sem ég veit ekki hvað er. Ég hef ekki hugmynd um hver er að sækja um ríkisborgararétt á Íslandi, hef ekki hugmynd um það. Það er miklu frekar að þetta fari í gegnum ferli sem er þá augljóst og gagnsætt en að hér sé einhvers konar valnefnd sem velji þetta. Ég greiði þessu ekki atkvæði.