151. löggjafarþing — 52. fundur, 3. feb. 2021.
umræða um 9. dagskrármál.
Forseti. Ég spyr fyrir forvitnissakir hvernig standi á því að ákveðið sé að gert verði hlé á því máli sem næst er á dagskrá, ef á þarf að halda, klukkan þrjú. Ég spyr í ljósi þess að það mál sem þá tekur við er þingmannamál sem hefur fengið forgang fram yfir önnur þingmannamál sem voru framar í þeirri röð. Ég vona að hæstv. forseti geti útskýrt hvers vegna flýtimeðferð er í þessu tiltekna tilviki.